aðgangur að gögnum úr Panama-málinu.
Virðulegi forseti. Í gær voru drifin í gegnum þingið lög án umsagnarferlis undir hótunum um að við yrðum sett á lista yfir ósamvinnuþýð lönd vegna skorts á aðgerðum til að sporna gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Frá því fyrir birtingu Panama-skjalanna þegar stjórnvöldum stóð til boða að kaupa gögn sem sýndu fram á umfangsmikil skattsvik Íslendinga í gegnum skúffufyrirtæki í hinum og þessum löndum hefur hins vegar ekki verið mikið gert. Ofan í margfalda málsmeðferð í skattamálum sem tekur allt of langan tíma hefur ekki mikið verið gert, a.m.k. ekki sýnilega. Árið 2016 höfðu verið opnuð um 250 mál vegna gagna sem voru keypt árið 2015, hluta gagnanna sem var að finna í Panama-skjölunum. Við munum öll hversu erfitt var að kaupa þau gögn og þar vísa ég í gagnrýni fjármálaráðherra frá febrúar 2015. Gögnin voru að lokum keypt og er samkvæmt fréttum rannsókn lokið í 96 málum. Af þeim hefur 64 verið vísað í refsimeðferð, sektarkrafa gerð í 17 málum, refsimeðferð er lokið í tveimur málum og 13 mál fóru ekki í refsingu. Sjö önnur mál klárast fljótlega. Þetta eru 103 mál alls og samkvæmt svari skattrannsóknarstjóra við fyrirspurn Kjarnans um málið eru þar undandregnir skattstofnar upp á 18,6 milljarða kr.
66 mál með undandregnum skattstofni upp á 9,7 milljarða voru felld niður, 41% af heildarupphæðinni upp á 23,3 milljarða. Ástæður niðurfellingarinnar eru raktar til rofs í málsmeðferð og þar eru stór mál upp á 2,2 milljarða vegna greiðslna frá erlendu félagi og annað upp á 876 millj. kr. vegna kaupa á hlutabréfum á lægra verði en gangverði.
Eins og við munum var fjallað mjög vel um svipað mál í íslenskum fjölmiðlum þar sem helmingur hlutabréfa í Wintris var seldur á aðeins einn dollar. Það sem mig langar að vita er annars vegar hvort við getum fengið að sjá þau gögn sem skattrannsóknarstjóri keypti, t.d. sýnishorn sem stjórnvöld fengu áður en ákveðið var að kaupa gögnin. Gögnin hafa verið birt opinberlega í Panama-skjölunum hvort sem er. Ég kem svo að næsta hluta í seinni ræðu.