150. löggjafarþing — 16. fundur,  10. okt. 2019.

bygging hátæknisorpbrennslustöðvar.

86. mál
[14:18]
Horfa

Flm. (Karl Gauti Hjaltason) (M):

Herra forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar um byggingu hátæknisorpbrennslustöðvar. Flutningsmenn auk mín eru hv. þingmenn Anna Kolbrún Árnadóttir, Ásmundur Friðriksson, Bergþór Ólason, Björn Leví Gunnarsson, Ólafur Ísleifsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Sigurður Páll Jónsson og Þorsteinn Sæmundsson.

Tillagan hljóðar svo, með leyfi forseta:

„Alþingi ályktar að fela umhverfis- og auðlindaráðherra að kanna hagkvæmni og möguleika þess að reisa hátæknisorpbrennslustöð sem meðhöndli mest allt eða allt sorp sem ekki er unnt að endurvinna hér á landi. Ráðherra kynni Alþingi niðurstöður könnunarinnar fyrir 1. apríl 2020.“

Tillaga þessi var áður flutt á 149. löggjafarþingi en hlaut ekki afgreiðslu og er nú lögð fram að nýju að mestu óbreytt en með viðbótum í greinargerð.

Herra forseti. Um fátt er meira rætt nú um stundir en mengun þá sem stafar frá mannkyninu og að móðir jörð þoli illa þá meðferð sem við bjóðum henni upp á. Eitt af þeim vandamálum sem að steðja er hvað eigi að gera við allt það sorp sem við skiljum eftir okkur. Við getum ekki lengur bara hent því frá okkur og höfum því leitast við að finna leiðir til að farga því, svo að sem minnst mengun sé af því. Lengi framan af höfðum við einfaldlega grafið sorpið okkar í jörðu og hingað og þangað, herra forseti, leynist sorp grafið í jörðu hér á landi sem þörf er á að greina áhættuna af.

Með tilliti til þess að gerð sorps hefur breyst mjög á undanförnum áratugum höfum við áttað okkur á því að mikið af þeim úrgangi brotnar ekki niður í jarðveginum eins og kannski var áður þegar samsetning hans var önnur en nú. Hér á landi hefur magn úrgangs farið vaxandi síðustu ár. Árið 2016 nam magn úrgangs sem féll til yfir milljón tonnum. Mest af þeim úrgangi telst þó óvirkur úrgangur, jarðvegur og ýmsar byggingarleifar sem hafa ekki í för með sér mengun við förgun eða urðun. Í ársskýrslu Umhverfisstofnunar fyrir árið 2017 kemur fram að staðan sé orðin sú að hver landsmaður losi sig að jafnaði við 660 kg af heimilisúrgangi á ári. Hluti þess fer til endurvinnslu en það sem eftir stendur er að mestu urðað á tilteknum urðunarstöðum víðs vegar um landið, m.a. í Álfsnesi, í Fíflholti á Mýrum og við Blönduós. Sorpa í Álfsnesi hefur starfsleyfi til að taka á móti og urða allt að 120.000 tonnum af úrgangi á ári. Árið 2018 voru urðuð þar rúmlega 141.000 tonn og töluvert minna árið áður. Sorpurðun Vesturlands hefur heimild fyrir urðun úrgangsefna í Fíflholti á Mýrum allt að 15.000 tonnum á ári. Árið 2018 voru urðuð þar rúmlega 15.000 tonn af úrgangi. Norðurá bs. hefur heimild til að urða allt að 21.000 tonnum við Stekkjarvík í landi Sölvabakka við Blönduósbæ. Árið 2018 voru urðuð þar tæp 22.000 tonn af úrgangi en örlítið minna árið áður. Alls var því 178.560.000 kílóum af sorpi fargað með urðun árið 2018 hér á landi.

Urðun úrgangs getur valdið grunnvatnsmengun um langa framtíð og eitrað jarðveg auk þess sem mikið landrými fer undir landfyllingar. Síðustu ár hefur heimilisúrgangur ekki verið fluttur frá Íslandi til brennslu í öðrum ríkjum, en spilliefni, t.d. olíuúrgangur, hafa verið send til annarra ríkja til endurnýtingar, t.d. til notkunar sem eldsneyti eða á annan hátt til orkuframleiðslu. Nýlega hafa komið upp hugmyndir um að sigla með sorp til Svíþjóðar og fleiri landa til brennslu í svokölluðum hátæknisorpbrennslustöðvum. Í morgun las ég þá frétt frá bæjarstjóranum í Ölfusi að sveitarfélagið hygðist flytja óflokkaðan úrgang úr sveitarfélaginu í samvinnu við Íslenska gámafélagið til Hollands. Eins og hann orðaði það, munu Hollendingar þá orna sér við sorp íbúa frá því svæði.

Sorpbrennslustöðvar eru búnar sérstökum tækni- og hreinsibúnaði til að brenna úrgang og hægt er að nýta varmann sem myndast við brennsluna. Árið 2016 voru starfræktar yfir tvö þúsund slíkar sorpbrennslustöðvar í heiminum. Allmargar þeirra eru í Evrópu. Á Íslandi er ein sorpeyðingarstöð sem hefur leyfi til sorpbrennslu en það er móttöku-, flokkunar- og brennslustöðin Kalka sem er í eigu sveitarfélaganna á Suðurnesjum. Stöðin getur brennt allt að 12.300 tonnum á ári og er útbúin hreinsunarbúnaði sem heldur mengun í lágmarki. Í stöðinni er nú mestallt sjúkrahússorp á landinu brennt auk hluta þess spilliefnaúrgangs sem til fellur hérlendis. Á síðustu árum hefur stöðin brennt tæpum 12.000 tonnum af sorpi á ári hverju sem telst vera 6% af því sorpi sem urðað er og brennt hér á landi á ári hverju, ef tekinn er saman úrgangur sem fer til urðunar eða brennslu. Unnt er að framleiða orku úr sorpinu en rafmagnsframleiðsla hefur þó legið niðri um árabil í stöðinni.

Evrópusambandið stefnir að því að banna urðun sorps í kringum árið 2030 og tekin hefur verið upp sú stefna í mörgum löndum Evrópu að brenna fremur sorp en urða það.

Samkvæmt landsáætlun um meðhöndlun úrgangs fyrir tímabilið 2013–2024 er stefnt að því að bæta nýtingu úrgangs og draga verulega úr urðun. Þar kemur m.a. fram að urðun er algengasta förgunarleið úrgangs hér á landi en urðunarstöðum hefur þó fækkað töluvert á síðustu árum, m.a. vegna hertra krafna um mengunarvarnir.

Um meðhöndlun úrgangs á næstu árum er jafnframt fjallað í svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs fyrir árin 2009–2020 sem tekur til starfssvæðis fjögurra sorpsamlaga. Þar kemur m.a. fram að stjórnir sorpsamlaganna hafa ákveðið að hætta urðun lífræns og brennanlegs úrgangs eigi síðar en á næsta ári. Stefnt er að því að draga úr myndun úrgangs en meðhöndla lífrænan úrgang með gas- og jarðgerðarstöðvum eins og fært er. Þar er einnig fjallað um ólíkar aðferðir við meðhöndlun úrgangs og forgangsröðun þeirra, þar á meðal þá úrgangsflokka sem þarf að brenna. Í því sambandi er m.a. gert ráð fyrir að könnuð verði hagkvæmni brennslustöðvar með varmaendurvinnslu og hvort hagkvæmt sé að flytja sorp til brennslu erlendis.

Herra forseti. Ljóst er að með vaxandi kröfum í umhverfismálum verða þjóðir heims hver fyrir sig að sjá um að eyða því sorpi sem til fellur hjá þeim með umhverfisvænum og hagkvæmum hætti. Því er tímabært að Íslendingar komi á fót eigin hátæknisorpbrennslustöð sem byggð yrði samkvæmt ýtrustu kröfum um mengunarvarnir.

Hátæknisorpbrennslustöðvum fylgja fjölmargir kostir. Með því að brenna sorp í hátæknibrennslustöð er sorpinu breytt í nýtanlega orku, raforku og hitaorku. Þá skila nýjustu hátæknisorpbrennslustöðvar tiltölulega lítilli loftmengun, langt innan þeirra marka sem leyfileg eru. Minna land fer til spillis og grunnvatn mengast síður. Rannsóknir sýna að kolefnisspor frá brennslu í háþróuðum sorpbrennslustöðvum reynist minna en af sorpi sem hlaðið er upp í landfyllingum. Hér má nefna sem dæmi nýja hátæknisorpbrennslustöð á Amager í Kaupmannahöfn, en sú stöð tók til starfa um mitt ár 2017. Árið 2018 voru brennd þar 443.000 tonn af sorpi í stöðinni sem stafa frá um 600.000 íbúum og um 46.000 fyrirtækjum. Úr úrganginum er unnið rafmagn og hiti fyrir 150.000 heimili. Framleiddar eru 1.090 gígavattstundir af varmaorku og 170 gígavattstundir af rafmagni á ári. Hitinn við brennslu er yfir 1000°C sem dregur úr mengun, þar sem færri mengandi efni losna við brennslu sorpsins. Til marks um hversu mengunarlítil stöðin á Amager er hafa útveggir brennslunnar verið útbúnir sem klifurveggir og af þakinu liggja skíðabrekkur.

Herra forseti. Mikilvægt er að Íslendingar stígi skref í þá átt að endurvinna sem mest af því sorpi sem hér fellur til og eyða því sem eftir stendur með þeim hætti sem frekast er fallinn til að vernda náttúru og umhverfi. Þannig verði stuðlað að verndun náttúrunnar fyrir núlifandi og komandi kynslóðir og sýnt í verki að Íslendingar taki ábyrgð á að farga eigin sorpi með eins lítilli mengun fyrir umhverfið og nokkur kostur er.

Í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu fer nú fram vinna við gerð stefnu í úrgangsmálum en drög að stefnunni voru send á umsagnaraðila í júlí sl. Flutningsmenn fagna því að sett verði heildstæð stefna í úrgangsmálum en telja afar brýnt að Alþingi lýsi yfir vilja sínum um að hagkvæmni byggingar hátæknisorpbrennslustöðvar verði skoðuð og það gert á afgerandi hátt með samþykkt tillögu þessarar.

Í ljósi alls framangreinds er lagt til að ráðherra verði falið að kanna möguleika þess að reisa hátæknisorpbrennslustöð hér á landi. Slík stöð gæti meðhöndlað brennanlegt sorp frá landinu öllu. Magn sorps sem þyrfti að brenna hérlendis gæti verið í kringum 100.000 tonn ef endurvinnsla og flokkun hér á landi verður færð fram til nútímalegs horfs. Í þessari könnun yrði lagt mat á hvaða aðili, ríki, sveitarfélög eða aðrir aðilar, gæti staðið að byggingu og rekstri slíkar stöðvar, hversu stór hún þyrfti að vera og hvar hagkvæmt væri að reisa hana, m.a. með hliðsjón af flutningi sorps milli landshluta og svokallaðra kaldra svæða á landinu. Í upphafi er mikilvægt að kanna samstarfsvilja allra sveitarfélaga til verkefnisins en sveitarfélög ákveða fyrirkomulag söfnunar heimilis- og rekstrarúrgangs og meðhöndlun hans. Jafnframt þarf að kanna hvaða verð væri unnt að bjóða fyrir förgun úrgangs og hvort og hversu hátt gjald sveitarfélögin væru tilbúin að greiða. Þannig yrðu kannaðir kostir og gallar við byggingu og rekstur slíkrar stöðvar með tilliti til förgunarkosta sem nú eru nýttir og ráðgert er að nýta. Jafnframt yrði könnuð raforku- og varmaframleiðsla sem slík stöð gæti skilað og selt frá sér og er þá sérstaklega horft til staðsetningar í nálægð við köld svæði landsins. Flutningsmenn gera ráð fyrir, með samþykkt þessarar tillögu, að ráðherra muni kynna Alþingi niðurstöður könnunarinnar fyrir 1. apríl 2020 eða næsta vor.

Herra forseti. Um leið og ég lýk máli mínu um þessa tillögu legg ég til að eftir umræður um hana verði henni vísað til meðferðar og umfjöllunar í umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis.