150. löggjafarþing — 16. fundur,  10. okt. 2019.

búvörulög og búnaðarlög.

163. mál
[15:59]
Horfa

Flm. (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég held að við hv. þingmaður séum ekkert ósammála. Það kostar að hafa landbúnað. Það er eins og menn vilji ekki heyra það, því það hentar ekki þeirra veruleika, að við í Viðreisn höfum margsinnis undirstrikað að við viljum styrkja og styðja við íslenska landbúnaðarframleiðslu en eins og hún er byggð upp núna er hún ekki réttlát, ekki réttlát gagnvart bændum og ekki réttlát gagnvart neytendum. Ég trúi á markaðinn til að styðja og efla bændur sem og neytendur. Landbúnaðarframleiðslan kostar. Þess vegna setjum við fram hugmyndir um að taka frekar óbeinu styrkina sem felast í tollverndinni og setja þá beint til bænda. Það eru ótrúleg tækifæri, ekki bara í landbúnaðarframleiðslunni fyrir bændur heldur núna á þeim tímum þar sem við þurfum einstaklinga og fólk til að yrkja landið, nytja það, rækta það, m.a. út af kolefnisjöfnun. Það getur vel verið að við sjáum innan tíðar kolefnisbændur sem hugsanlega byggja upp kolefniskvóta sér til hagsbóta og samfélaginu öllu. Við erum að fara inn í allt annan veruleika og verðum þá að vera tilbúin. Þá megum við ekki segja: Óbreytt kerfi er það sem verður að vera hér til eilífðarnóns. Það er gríðarlega mikilvægt að við komumst að samkomulagi um að styðja við íslenska landbúnaðarframleiðslu en hún þarf að styðja við bændur, neytendur og umhverfið.

Varðandi Ríkisútvarpið er þingmaðurinn ekki alveg að ræða við réttu manneskjuna. Ég veit ekki hversu oft ég lagði það til innan þingflokks Sjálfstæðisflokksins á sínum tíma að við þyrftum með einhverjum hætti að takmarka aðkomu Ríkisútvarpsins að auglýsingum. Ég benti margoft á að við ættum að líta til að mynda til Þýskalands af því að við þurfum sem aldrei fyrr á fjölbreyttri flóru fjölmiðla að halda. En það þýðir ekki að ég komi í leiðangur með hv. þingmanni í að rakka niður Ríkisútvarpið.