150. löggjafarþing — 17. fundur,  14. okt. 2019.

eignasöfnun og erfðafjárskattur.

[15:07]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Það er út af fyrir sig gott að hæstv. forsætisráðherra svari því ekki afgerandi að hún ætli að styðja þessa útfærslu af því að hún er vond. Það eru hins vegar tíðindi að hún velti fyrir sér hvort eignaójöfnuður sé að aukast á Íslandi. Ég hef sent núna nokkur þing í röð fyrirspurn til fjármálaráðherra og fram hefur komið að mjög lítill hluti landsmanna taki til sín langmestan hluta auðsins og að eignir séu að þjappast á afar fáar hendur á Íslandi.

Ég held að það sé skynsamlegt að hafa prógressífan erfðafjárskatt til að vinna gegn samþjöppun og ég vona að ég eigi stuðning hæstv. forsætisráðherra í því að hér séum við að tala um einhver raunveruleg þrep. Síðan getum við auðvitað hækkað frítekjumark og ýmislegt annað. Ég spyr hæstv. forsætisráðherra aftur hvort hún muni ekki styðja mig í því að útfæra þetta þannig að þetta muni ekki auka ójöfnuð.