greiðsluþátttaka Sjúkratrygginga vegna tannréttinga.
Herra forseti. Á tyllidögum státum við okkur einatt af því að eiga eitt besta heilbrigðiskerfi í heimi. Við viljum einnig öll að allir geti notið nauðsynlegrar læknishjálpar án tillits til efnahags. Heilbrigðiskerfið hér á landi er eitt það allra besta en þar er líka að finna brotalamir, bresti sem berja þarf í um leið og þeir uppgötvast. Þetta hefur löggjafinn oft áréttað við lagasetningu og síðan er það framkvæmdarvaldsins að framfylgja þeim vilja. Ráðherrar framkvæma löggjafarviljann og útlista hann nánar í reglugerðum. Þannig á að vera tryggt að allt stjórnkerfið gangi í sama takti.
Að þessum inngangi loknum kem ég að efni fyrirspurnar minnar sem er um greiðsluþátttöku vegna tannréttinga. Fyrir rúmu ári beindi ég fyrirspurn til hæstv. heilbrigðisráðherra um tannréttingar barna sem fæðast með klofinn góm eða klofna vör og var ráðherra þá sammála mér um að leiðrétta þyrfti þá mismunun sem afmarkaður hópur barna virðist búa við er varðar greiðsluþátttöku sjúkratrygginga við tannréttingar. Hæstv. ráðherra sagði það ekki hafa verið markmið löggjafans að haga málum með þessum hætti og sagðist myndu skoða málin með það fyrir augum að gera breytingu á þessari ójöfnu stöðu. Í desembermánuði í fyrra breytti ráðherra reglugerð nr. 451/2013 með reglugerð nr. 1254/2018 um þetta efni.
Herra forseti. Allt væri þetta hið besta mál ef ekki væri fyrir það að á grundvelli hinnar nýju reglugerðar hafa Sjúkratryggingar enn synjað foreldrum þessara barna um greiðsluþátttöku. Því vil ég spyrja hæstv. ráðherra: Urðu áhrif reglugerðarinnar að því er varðar þennan hóp barna eins og ráðherra ætlaði eða hyggst ráðherra gera á henni endurbætur eftir þá reynslu sem á hana er komin?