150. löggjafarþing — 17. fundur,  14. okt. 2019.

greiðsluþátttaka Sjúkratrygginga vegna tannréttinga.

[15:28]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég treysti því að hv. þingmaður haldi mér áfram við efnið í þessu máli. Við erum samherjar í því að bæta þarna um betur. Vegna þess sem kom fram í fyrri spurningu hv. þingmanns vil ég árétta að það er algjörlega skýrt að þegar löggjafinn hefur gert grein fyrir vilja sínum er það verkefni framkvæmdarvaldsins að koma þeim vilja til framkvæmdar. Um leið er ekki við neinn að sakast nema ráðherrann sjálfan, ekki stofnanirnar sem fara að þeim reglum og lögum sem fyrir liggja. Í þessu tilviki nær reglugerðin sem kom frá mér í fyrra ekki nægilega skýrt utan um þessi tilvik þannig að hér þarf að bæta um betur.