150. löggjafarþing — 17. fundur,  14. okt. 2019.

staða opinberra framkvæmda.

[15:30]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V):

Herra forseti. Ég ætla að leyfa mér í upphafi máls míns, í tilefni af fyrstu óundirbúnu fyrirspurninni sem var hér til umræðu, að benda á að fyrir liggur frumvarp frá þingflokki Viðreisnar um erfðafjárskatt þar sem nálgunin er önnur en í því frumvarpi sem er í samráðsgáttinni, og ég hvet þingmenn til að kynna sér það. Það er hins vegar ekki ástæða þess að ég kem hér og ætla að fá að bera fram spurningu til hæstv. fjármálaráðherra.

Þann 25. apríl árið 2018 var samþykkt hér tillaga með því þjála nafni Tillaga til þingsályktunar um tryggingu gæða, hagkvæmni og skilvirkni opinberra fjárfestinga. Gekk sú tillaga út á það að ríkið setti sér stefnumörkun til að tryggja þessi markmið og enn fremur yrði skipaður sérstakur starfshópur sérfræðinga þar sem tengdir yrðu saman þeir aðilar sem best þekkja til og þekkja þau málefni sem þar eru undir. Þessa þingsályktunartillögu samþykktu 47 þingmenn, allir þingmenn sem voru viðstaddir atkvæðagreiðsluna

Fyrir tæpu ári átti ég orðastað við hæstv. fjármálaráðherra um málið og innti hann eftir því hvernig verkinu miðaði fram. Með leyfi forseta, sagði hæstv. fjármálaráðherra:

„Það sem er að frétta af málinu er að það er í vinnslu og ég var nú síðast með það í þessari viku á borði mínu og til úrlausnar.“

Mig langar því að spyrja hæstv. fjármálaráðherra hvort málið sé enn á borðshorni ráðherrans eða hvort einhver framvinda hafi orðið í málinu sem hann getur skýrt frá hér.