150. löggjafarþing — 17. fundur,  14. okt. 2019.

uppsagnir á Reykjalundi.

[15:40]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin og tek undir mikilvægi þess að ró komist yfir þennan fallega og mikilvæga stað sem Reykjalundur er.

Ég tel mikilvægt að við tryggjum gæði, fjölbreytileika og valfrelsi í heilbrigðisþjónustu okkar. Þannig tel ég einnig tækifæri til að tryggja hagkvæmni og ánægju notenda með þjónustuna. Sjálfseignarstofnanir eins og SÍBS, SÁÁ, Samhjálp og Rauði krossinn, svo einhverjar séu nefndar, veita mikilvæga og viðkvæma þjónustu fyrir samfélagið. Mikilvægt er að standa vörð um þetta góða og mikilvæga starf og alveg ljóst að samfélagslegur auður slíks starfs er gríðarlegur. Með lögum um opinber innkaup ber Sjúkratryggingum að bjóða út þjónustu og nú hefur það verið gert, bæði fyrir starfsemi SÁÁ og Reykjalundar, að ég best veit. Mikilvægt er að gæði og rekstraröryggi þessara aðila sé tryggt með sanngjörnum og góðum samningi en þá koma líka upp spurningar um eftirlit, stjórnsýslu, ábyrgðarkeðju o.fl.

Hver er sýn ráðherra á þessi atriði og hvernig tryggjum við sem best þessa mikilvægu þjónustu? Hvernig tryggjum við skýran ramma og ábyrgðarkeðju fyrir þá sem veita þessa mikilvægu þjónustu? Eru hugmyndir um að ráðherra skipi aðila í stjórn Reykjalundar, eins og var fram til ársins 2009, eitthvað sem hugnast ráðherra?