150. löggjafarþing — 17. fundur,  14. okt. 2019.

uppsagnir á Reykjalundi.

[15:41]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Eins og hv. þingmaður benti á sat fulltrúi ríkisins til skamms tíma í stjórn Reykjalundar. Ég held að það sé rétt munað hjá mér að það hafi gerst fyrir fimm árum að fulltrúi ríkisins var ekki lengur í stjórn þessarar starfsemi, og ég set spurningarmerki við það. Mér er ekki kunnugt um hvað það var nákvæmlega sem olli þeirri breytingu. Ég held að það sé kannski það mikilvægasta af öllu, þegar verið er að ræða um mikilvæga þjónustu af þessu tagi, að grundvöllurinn, bæði hinn faglegi og rekstrarlegi, sé það traustur og öruggur að við þurfum ekki að horfa upp á vendingar eins og urðu í síðustu viku. Það er áfall hvað varðar fagmennskuna á staðnum en ekki síður fyrir sjúklinga og almenning í landinu að þessi mikilvægi hluti heilbrigðisþjónustunnar byggi ekki á traustari grunni en þarna kemur fram. Ég held að það sé eitthvað sem við þurfum að fara yfir, með tilliti til samninganna, að tryggja betur þennan trausta grunn og þar með talið ábyrgðarkeðju og skýrleika eins og hv. þingmaður bendir réttilega á.