150. löggjafarþing — 18. fundur,  15. okt. 2019.

störf þingsins.

[13:31]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg):

Herra forseti. Í síðustu viku skilaði starfshópur sem ég fór fyrir skýrslu til hæstv. heilbrigðisráðherra um hjálpartæki og hvernig við sjáum fyrir okkur framtíðarfyrirkomulag þeirra. Mig langaði að gera Alþingi örstutta grein fyrir þessari vinnu. Í starfshópnum sátu ásamt mér fulltrúar frá hagsmunasamtökum notenda hjálpartækja og fagaðilar sem aðstoða fólk við að velja rétt hjálpartæki, svo sem iðjuþjálfar og sjúkraþjálfarar, en einnig fulltrúi frá Sjúkratryggingum Íslands sem hefur lokaumsjón með því að útdeila stórum hluta hjálpartækja.

Ég bind miklar vonir við að nú verði farið í tiltekt í þessum málum. Þó að við Íslendingar gerum ýmislegt ágætlega þegar kemur að hjálpartækjum er svo sannarlega margt sem betur má fara. Eitt af því sem þarf að gera er hreinlega að endurskoða reglugerðir og uppfæra þær í samhengi við lög. Þetta kann að hljóma í eyrum einhverra sem óttalegur tittlingaskítur og eitthvað sem skiptir ekki máli en svo er alls ekki. Það skiptir máli hvernig við tölum um hlutina, þar er nefnilega ákveðin lína sett. Hér eru einnig lagðar til stærri og flóknari breytingar, svo sem að taka til endurskoðunar hvort leggja eigi virðisaukaskatt á hjálpartæki og hvort rétt sé að sameina hlutina þannig að mál sem snerta hjálpartæki og fara núna í gegnum tvö ráðuneyti og eru einnig í höndum sveitarfélaganna verði öll á höndum ríkisins og heyri undir eitt ráðuneyti. (Forseti hringir.) Ég bind miklar vonir við að hér sé komin af stað vinna sem verði notendum hjálpartækja til mikilla hagsbóta.