150. löggjafarþing — 18. fundur,  15. okt. 2019.

störf þingsins.

[13:45]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Virðulegi forseti. Sjaldan eða aldrei hefur verið meiri ástæða en nú til að eiga góða rödd með vinum okkar, Grænlendingum og Færeyingum, hvað lýtur að sérstöðu okkar hér á norðurslóðum. Við erum nýlega búin að halda hér einhverja glæsilegustu ráðstefnu sem haldin hefur verið þar sem voru um 60 lönd og 2.000 þátttakendur. Mér er sá sómi sýndur að vera í svokölluðu Vestnorrænu ráði og við erum að fara í næstu viku, fulltrúar Alþingis, fulltrúar Íslendinga, til Grænlands til að ræða þar við vini okkar, félaga og nágranna um stöðuna eins og hún er.

Frá því að ég kom á hið háa Alþingi og var boðið að vera í Vestnorræna ráðinu hef ég barist fyrir því, verð ég að viðurkenna, að skilja yfir höfuð hvað fer fram á þeim ráðstefnum sem ég sæki þegar ég sæki frændur okkar heim. Mér þykir við vera að spara aurinn og fleygja krónunni þegar hluti af okkur, ég veit ekki hversu mörg, en ég sé það á þessum samkomum okkar að við erum ansi mörg ekki bær til þess að tjá sig af neinu viti eða neinni skynsemi um það sem þar fer fram.

Ég skora á alla sem geta komið að því og segi: Ef einhvern tíma var þörf á að sendinefnd Íslendinga í Vestnorrænu ráði geti tjáð sig og talað og tekið þátt í starfinu þá er það akkúrat núna.