150. löggjafarþing — 18. fundur,  15. okt. 2019.

störf þingsins.

[13:52]
Horfa

Brynjar Níelsson (S):

Virðulegur forseti. Eins og við þekkjum, flestir þingmenn ef ekki allir, fáum við oft bréf frá ýmsum hagsmunahópum, oft mjög góð bréf og góðar ábendingar. Ég ætla að gera hér að umtalsefni bréf sem ég fékk, og reikna með að aðrir þingmenn hafi fengið líka, frá félagsskap sem heitir Líf án ofbeldis. Miðað við innihald bréfsins er félagsskapurinn samansettur af mæðrum eingöngu sem gera þær kröfur að þingmenn bregðist við því sem þeir sem fara með úrskurðarvald í forsjár- og umgengnismálum, þ.e. sýslumenn og dómstólar, gera. Félagsskapurinn vill að við skiptum okkur af því og breytum einhvern veginn umhverfinu vegna þess að niðurstaðan hentar ekki. Ég vara þingmenn við því að bregðast við tilmælum sem þessum því að bréf af þessu tagi eru aðför að réttarríkinu. Þetta er aðför að þeim aðilum sem ber að úrskurða um ágreining og krafa um að annar aðilinn hafi sjálfdæmi um það hvernig niðurstaða í slíkum málum verður. Ég mun ekki taka þátt í slíku og ég vona að öðrum þingmönnum detti það ekki í hug. Fólk er hér í þeirri baráttu að það gerir kröfu um að við víkjum til hliðar reglum réttarríkisins sem við erum búin að strögla við að koma á árum, áratugum og jafnvel öldum saman. Ég bið hv. þingmenn að íhuga þetta.