150. löggjafarþing — 18. fundur,  15. okt. 2019.

störf þingsins.

[13:56]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Manneskjur gera margt áberandi betur en skyldustu dýrategundir. Manneskjur hafa góða sjón, eru góðar í langhlaupi, ganga uppréttar og geta auðveldlega handfjatlað hluti. Eitt af því sem manneskjur eru líka afspyrnugóðar í og er sjaldnar talað um er að hafa rangt fyrir sér. Þessi undraverði hæfileiki er líklega til kominn vegna þess að við höfum svo margar og fjölbreyttar leiðir til að komast að kolrangri niðurstöðu. Við höfum sterkt ímyndunarafl, setjum hlutina auðveldlega í algjörlega óskylt samhengi og síðan höfum við mikilvægasta eiginleikann sem þarf til að dreifa ranghugmyndum og þvælu — tungumál. Við getum ímyndað okkur eitthvað í engum tengslum við raunveruleikann og dreift þeirri ímyndun villt og galið út um allan heim og í seinni tíð án teljandi kostnaðar eða erfiðis. Áhrif þessa ótrúlega hæfileika sjást víða í stjórnkerfum, trúarbrögðum, læknisfræði og réttlætishugmyndum ýmissa þjóðfélaga í gegnum söguna.

Síðustu örfáu aldir höfum við haft ákveðið leynivopn gegn neikvæðum áhrifum þessara áhrifaríku eiginleika og það er vísindaleg aðferð. Vísindin eru ástæðan fyrir því að við erum nú fleiri en 7 milljarðar, göngum á tunglinu og getum vel gengið á mars á þessari öld, vel hugsanlega á fyrri hluta hennar. Það eru vísindin sem gera okkur kleift að lækna sjúkdóma, lengja líf og auka heilbrigði. Það eru vísindin sem gera okkur kleift að ferðast á þann hátt sem við gerum og eiga samskipti. En umfram allt eru það vísindin sem gera okkur kleift að vita, skilja og þekkja muninn á því sem er satt og því sem er ósatt um hinn holdlega raunveruleika sem við deilum öll saman. Þróunarkenningin er u.þ.b. jafn vel staðfest og það að jörðin sé hnöttótt, það að loftslagsbreytingar af manna völdum eigi sér stað og ógni áframhaldandi velgengni okkar sem dýrategundar, en við tökum því kannski fullmikið sem sjálfsögðum hlut þessa dagana. Það er auðvelt þegar hin náttúrulega eftirspurn mannkyns eftir trúlegri þvælu er meiri en eftir óþægilegum sannleika en þess heldur ber okkur að horfast í augu við heiminn eins og hann birtist okkur. Það þýðir að við tökum á móti og styðjum vísindalega aðferð í öllum okkar verkum.