150. löggjafarþing — 19. fundur,  16. okt. 2019.

störf þingsins.

[15:06]
Horfa

Ásmundur Friðriksson (S):

Virðulegi forseti. Í tilefni af ræðu hv. þm. Ingu Sæland í gær um vestnorræna samstarfið vil ég taka undir það sem þar kom fram um mikilvægt og áhugavert samstarf. Hv. þingmaður ræddi um þekkingu okkar og getu í erlendum tungumálum. Ég viðurkenni að þegar fyrst var leitað til mín um að taka sæti í þessu ráði skoraðist ég undan þrátt fyrir að ég hefði áratugareynslu af viðskiptum við Dani í fiskvinnslu og fisksölu og við ýmsa aðila úti um allan heim. Ég hef ágæta þekkingu á tungumálum en fyrst skoraðist ég samt undan því. Svo lét ég undan og tók þátt í þessu starfi þó að danska sé ekki mitt annað tungumál og kannski varla það þriðja. Við í nefndinni fáum mjög mikla aðstoð frá frábæru starfsfólki í þinginu og ég hef haft afar mikið upp úr þessu samstarfi. Ég verð að segja eins og er, að það hefur skilað mér afar miklu. Þetta er öðruvísi samstarf og örugglega allt annað en þingið byggir á. Þetta byggist miklu meira á samheldni og vináttu sem er líka grunntónn samstarfsins.

Ég hef flutt þingsályktunartillögu í færeyska þinginu á vegum Vestnorræna ráðsins sem var vel undirbúin hérna heima. Hún var samin á íslensku en síðan þýdd yfir á dönsku og það gekk stórslysalaust að flytja hana. Ég hef öðlast dýpri þekkingu á þessu samstarfi og ég held að samstarfið eins og það er sett upp skipti okkur öll sem tökum þátt í því miklu máli. Það hefur persónulegan ávinning og svo tekst ótrúleg vinátta með góðum nágrönnum.