150. löggjafarþing — 19. fundur,  16. okt. 2019.

störf þingsins.

[15:15]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Herra forseti. Skattablæti núverandi ríkisstjórnar með formann Sjálfstæðisflokksins sem fjármálaráðherra tekur á sig ýmsar birtingarmyndir. Ein þeirra er illa útfært frumvarp um urðunarskatt. Fram hefur komið í umsögnum, m.a. frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Sorpu, að málið sé ekki nægjanlega vel undirbúið auk þess sem samráð hafi skort við viðkomandi aðila við undirbúning málsins. Þá hafa umsagnaraðilar einnig bent á að sú tala sem unnið var út frá, þ.e. 15 kr. á kíló, muni vera hraustlega yfirskotin. Það sé engin leið önnur en að velta þessu gjaldi yfir á notendur þjónustunnar. Reiknast Sorpu til að meðaltal urðunarskatts, þar sem hann er lagður á, sé 4,93 kr. á kíló en 4,38 kr. ef allra hæsti skatturinn er undanskilinn. Hér er áformað að urðunarskattur verði eins og áður segir 15 kr. á kíló. Verði sá skattur lagður á þýðir það 62% hækkun á urðunargjaldi hjá Sorpu. Einnig hefur verið á það bent að slík ofurgjaldtaka geti haft þveröfug áhrif á markmiðið og beinlínis virkað sem hvatning til losunar með ólögmætum hætti.

Að þessu sögðu, herra forseti, er rétt að hafa í huga lífskjarasamningana og færa má fyrir því sterk rök að enn einn skatturinn geti grafið undan samningunum sem svo mjög er þörf á að haldi.

Herra forseti. Nú þegar hagkerfið er í varnarfasa og fyrirtæki halda að sér höndum þykir mér skjóta skökku við að bæta enn í álögur á fólk og fyrirtæki.