150. löggjafarþing — 19. fundur,  16. okt. 2019.

störf þingsins.

[15:31]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (Vg):

Virðulegur forseti. Ég vil vekja athygli á svari félags- og barnamálaráðherra sem birtist í gær við fyrirspurn minni um fæðingar- og foreldraorlof. Þetta er óvenju efnismikið svar og ég held að ég verði að hrósa hæstv. ráðherranum fyrir að hafa lagt jafn mikla vinnu í það og raun ber vitni. Hér eru upplýsingar á 12 blaðsíðum í 13 töflum sem teikna ágætlega upp hvernig fæðingarorlof hefur skipst á foreldra eftir kyni, tekjubili, stöðu á vinnumarkaði og ýmsu öðru síðustu fimm árin.

Það eru nokkur atriði sem mig langar að benda á sem stökkva upp af þessum síðum við fyrstu sýn. Í fyrsta lagi hinn sameiginlegi réttur foreldra, þeir þrír mánuðir sem mæður og feður geta skipt sín á milli. Þeir falla nær eingöngu til kvenna. Mæðurnar nýta þá til að ná almennilegu fæðingarorlofi. Í kringum 90% mæðra fullnýta þennan rétt og það eru ekki nema 11% feðra sem nýta eitthvað af sameiginlega réttinum.

Í öðru lagi kemur fram að á hverju ári séu um 700 feður sem taki ekkert fæðingarorlof vegna fæðinga barna sinna. Þetta þykir mér nú bara kalla á sjálfstæða rannsókn á ástæðum þessa. 100 mæður sækja ekki heldur um fæðingarorlof og ég velti fyrir mér hvort það séu konurnar sem við sjáum gjarnan í fréttum sem eru t.d. fluttar heim úr löndum þar sem þær hafa verið í námi og njóta þess vegna ekki réttinda. Þetta þarf að leggjast rækilega yfir uppi í ráðuneyti og svo þarf að skoða sérstaklega botninn í kerfinu, lægstu greiðslurnar sem eru smánarlegar fyrir fólk utan vinnumarkaðar og í námi. Við þurfum að hífa þær upp til þess að fæðingarorlofskerfið geti þjónað því að vera ekki bara vinnumarkaðsúrræði heldur líka félagslegt stuðningsnet.