150. löggjafarþing — 19. fundur,  16. okt. 2019.

neytendalán.

223. mál
[16:24]
Horfa

ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um neytendalán, nr. 33/2013, á þskj. 240, 223. mál. Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögunum til að skýra betur réttarstöðu neytenda og ábyrgð lánveitenda. Markmið frumvarpsins er að efla neytendavernd á fjármálamarkaði og koma í veg fyrir sniðgöngu laga um neytendalán. Frumvarpið byggir á tillögum úr skýrslu starfshóps sem ég skipaði sumarið 2018 og hafði að verkefni að endurskoða starfsumhverfi smálánafyrirtækja og gera tillögur að úrbótum. Við gerð frumvarpsins voru þær tillögur úr skýrslunni valdar sem taldar eru skila mestum árangri en aðrar eru enn til frekari skoðunar í öðrum ráðuneytum eða í samstarfi við önnur ráðuneyti. Líta má því á frumvarpið sem fyrsta áfanga við að koma tillögum skýrslunnar til framkvæmda.

Með frumvarpinu er í fyrsta lagi lagt til að skerpt verði á meginreglunni um að ákvæði laga nr. 33/2013 séu ófrávíkjanleg gagnvart neytendum og að óheimilt sé að semja um eða bera fyrir sig lög annars ríkis ef slíkt takmarkar neytendavernd laganna.

Í öðru lagi er lagt til að lögfest verði sérstakt ákvæði um lagaval. Á það t.d. við í þeim tilvikum þegar neytandi búsettur á Íslandi gerir lánssamning við lánveitanda í Danmörku. Þá getur vaknað spurning um lög hvaða lands gildi um samninginn. Með frumvarpinu er lagt til að kveðið verði á um að íslensk lög gildi um samning ef íslenskur neytandi gerir samning við erlendan lánveitanda, að uppfylltum nánari skilyrðum.

Í þriðja lagi er lagt til að kveðið verði afdráttarlaust á um að neytanda sé óskylt að greiða heildarlántökukostnað láns ef lánveitandi eða lánamiðlari brýtur gegn ákvæði 26. gr. laganna um hámark árlegrar hlutfallstölu kostnaðar. Markmið breytingarinnar er að gera regluna um hámark árlegrar hlutfallstölu kostnaðar skýrari gagnvart neytendum og tryggja skilvirkari framfylgd hennar. Með heildarlántökukostnaði er átt við allan kostnað, þar með talið vexti, verðbætur, þóknun, skatta og önnur gjöld sem neytandi þarf að greiða í tengslum við lánssamning. Neytandi þarf því ekki að endurgreiða annað en höfuðstól láns.

Í fjórða lagi er lagt til að Neytendastofa fái almenna heimild til upplýsingaöflunar samkvæmt lögunum. Mikilvægt er að eftirlitsaðili hafi upplýsingar um útlánasafn lánveitenda svo hægt sé að meta umfang starfseminnar og áhrif á markaðinn og neytendur. Breytingunni er því ætlað að auðvelda Neytendastofu að fylgjast með markaðnum í samræmi við lögbundið eftirlitshlutverk sitt.

Með frumvarpinu er stefnt að því að uppræta orsök þess meginvanda sem lýst er í áðurnefndri skýrslu starfshóps ráðherra án þess að hafa skaðleg áhrif á samkeppni eða framboð á löglegum neytendalánum sem veitt eru í fjarsölu. Stefnt er að því að frumvarpið hafi sem mest áhrif á fyrirtæki sem stunda ólögmæta lánastarfsemi en minni áhrif á önnur. Markmið frumvarpsins er að draga úr skuldavanda neytenda vegna smálánaskulda. Neytendum verður gert auðveldara að bera fyrir sig íslensk lög þegar gerður er lánssamningur við erlendan lánveitanda og verður ekki skylt að greiða kostnað umfram lögbundið hámark.

Að því er varðar aðrar tillögur úr skýrslu starfshópsins eru þær, eins og ég nefndi, til frekari skoðunar á vegum stjórnvalda og í samráði við haghafa. Í þessu samhengi vil ég sérstaklega nefna að í samstarfi við fjármála- og efnahagsráðuneytið eru til skoðunar breytingar á lögum nr. 120/2011, um greiðsluþjónustu, sem eru á forræði þess ráðuneytis. Markmið þeirra breytinga er að koma í veg fyrir að innheimtur sé kostnaður af neytendalánum umfram lögbundið hámark. Það er ákveðið lykilatriði til að hafa bein áhrif á fyrirtæki sem stunda ólögmæta smálánastarfsemi og ég bind vonir við að frumvarp þess efnis líti dagsins ljós á næstunni. Er sem stendur unnið að því í fjármála- og efnahagsráðuneytinu.

Jafnframt má nefna að innan atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis er, í samstarfi við dómsmálaráðuneyti og fleiri aðila, unnið að umbótum í eftirliti með innheimtustarfsemi, bæði er varðar frum- og milliinnheimtu og löginnheimtu, með tilliti til álitaefna sem tengjast innheimtu smálána. Sem áður segir er það frumvarp sem ég mæli hér fyrir fyrsti áfangi í innleiðingu þeirra tillagna sem komu fram í skýrslu starfshóps ráðherra um starfsumhverfi smálánafyrirtækja. Það sem hér er lagt fram er ekki hin endanlega lausn, heldur hluti af stærri mynd. Ég tel að með frumvarpinu sé um mikilvæga réttarbót að ræða þar sem réttarstaða neytenda og ábyrgð lánveitanda er skýrð og þar með neytendavernd á fjármálamarkaði efld og brugðist við þeirri sniðgöngu á lögum nr. 33/2013 sem við höfum svo sannarlega orðið vitni að á undanförnum árum.

Virðulegur forseti. Að lokinni þessari umræðu legg ég til að frumvarpinu verði vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar til umfjöllunar og meðferðar.