ræktun iðnaðarhamps.
Forseti. Mig langar að ræða aðeins við hæstv. ráðherra um iðnaðarhamp en orðið iðnaðarhampur er heiti yfir þá tegund kannabisstofnsins sem er notaður til iðnaðar, cannabis sativa, sem hefur mjög lágt gildi virka efnisins tetrahydrocannabinol sem er betur þekkt sem THC og getur því ekki verið notað sem vímugjafi. Vímuefnin eru unnin úr plöntunni cannabis indica en hún er ekki til umræðu hér. Hægt er að fá leyfi á Íslandi til að rækta iðnaðarhamp og nýta nánast alla afurðina nema blómin. Þau innihalda virka efnið cannabidiol, CBD, sem er hættulaust og veldur ekki vímu en hefur reynst fólki ótrúlega vel sem lyf og fæðubótarefni. Iðnaðarhampur þarfnast hvorki skordýraeiturs né illgresiseyðis og er einungis þrjá til fjóra mánuði að ná þeim þroska sem þarf til að fella hann og nýta í afurðir.
Iðnaðarhampur er nýttur á ótrúlega marga ólíka vegu og hátt í 25.000 mismunandi vöruflokkar eru framleiddir úr honum. Fyrstu Levi's-gallabuxurnar voru saumaðir úr striga sem var ofinn úr hampi og markaðssettar fyrir gullgrafara vegna þess hversu endingargóðar þær voru. Bílaframleiðendur í dag eru farnir að nota hamp við framleiðslu á innra og ytra byrði bifreiða, nú síðast Porsche. Tilraunir með að framleiða lífdísil úr hampi lofa góðu. Tilraunaræktun á Íslandi á cannabis sativa lofar góðu. Ræktun iðnaðarhamps og nýting hans hefur jákvæð áhrif á loftslagsmál. Fáar ef nokkrar plöntur sem eru hæfar til ræktunar binda koltvísýring jafn hratt og flestar vörur úr iðnaðarhampi koma í stað annarra mengandi valkosta, hamptrefjaplötur í stað koltrefja og hampsteypa í stað steinsteypu. Hampsteypa andar meira að segja og myndast því ekki mygla í húsum sem eru byggð úr hampsteypu.
Mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra hvort hún sjái tækifæri í að skoða nánar hvernig Íslendingar geta tileinkað sér iðnaðarhamp og hugsanlega myndað sér sérstöðu í vinnslu, meðhöndlun og túlkun á því hráefni. Telur ráðherra tilefni til að skoða laga- og reglugerðarumhverfi með það að markmiði að fjarlægja hindranir og skapa hvata til að fara að rækta iðnaðarhamp í meira magni á Íslandi og framleiða vörur úr þeirri afurð?