ræktun iðnaðarhamps.
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):
Herra forseti. Ég ætla að byrja á að þakka hv. þingmanni fyrirspurnina og fræðsluna. Líkt og hv. þingmaður fór skýrt yfir skiptir auðvitað máli að halda því til haga að hampur sem slíkur er ekki eiturlyf. Það er munur á hampræktun til iðnaðarnota og kannabisræktun til lyfjagerðar og vímuáhrifa. Hampiðjan heiti bara Hampiðjan því að þar er notaður hampur til að gera reipi og eins og hv. þingmaður kom inn á nota t.d. Benz og BMW þegar iðnaðarhamp í einangrun í bíla sína með góðum árangri.
Hv. þingmaður spyr hvort ég sé opin fyrir því að skoða laga- og regluverk utan um þetta, framleiðslu og tækifæri, og ég er að sjálfsögðu mjög opin fyrir því. Ég viðurkenni fúslega að ég þekki ekki laga- og regluverkið þannig að ég geti staðið hér og svarað því hvort það kalli á sérstaka endurskoðun og hvar þá helst en er opin fyrir því að kanna hvort svo sé, bæði svara ég því sem iðnaðarráðherra og ekki síður sem nýsköpunarráðherra. Ef opnað er á frekari tækifæri fyrir einhvers konar framleiðslu eða öðru er ég opin fyrir því. Í dag er t.d. verið að gera tilraunir í Berufirði þar sem bændur þar reyna fyrir sér í ræktun á iðnaðarhampi í þeim tilgangi að athuga hvort hægt sé að framleiða trefjaplöntur úr heimaræktuðum hampi sem hráefni í gjafavöru og leikföng sem þeir framleiða. Hampur án THC er því eitthvað sem ég er opin fyrir að skoða og hvort við getum með einhverjum hætti lagað regluverkið þannig að það auðveldi framleiðslu eða annað sem einstaklingum hér á landi dettur í hug að búa til verðmæti úr eða finna leiðir til að skapa frekari verðmæti eða störf. Ég er að sjálfsögðu opin fyrir því að gera það sem ég get til að auðvelda það með því að regluverkið sé jákvætt.