ræktun iðnaðarhamps.
Forseti. Það er frábært að heyra og ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir jákvæð svör, enda held ég að það sé mikið af tækifærum í því að leggja meiri áherslu á ræktun þessarar plöntu hér á landi. Ég myndi vilja hvetja hæstv. ríkisstjórn og hæstv. ráðherra til að setja á fót einhvers konar samstarf milli hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, heilbrigðisráðherra og nýsköpunarráðherra til að aflétta þeim hindrunum sem eru í vegi þannig að hægt sé að hefja framleiðslu iðnaðarhamps og virðisaukandi vinnslu á honum. Slíkt samstarf er mikilvægt og mér skilst að núna sé laga- og reglugerðaumhverfið á mjög gráu svæði þegar kemur að þeim málaflokki öllum og hann fellur undir nokkur ráðuneyti.
Úr fræjum hamps er unnin olía sem er notuð í lækningaskyni víðs vegar um heim og sem íblöndunarefni í málningu og snyrtivörur. Olían er notað til matargerðar, sem fæðubótarefni í matvælum og í hampmjólk, þurrkuð og mulin fræ þykja ágæt til baksturs og sem dýra- og fuglafóður en það eru hindranir hér á landi þegar kemur að því að nota CBD innvortis, þ.e. til lækninga (Forseti hringir.) og sem fæðubótarefni. Það væri gott ef þetta væri allt saman skoðað á heildstæðan hátt því að eins og ég minntist á áðan er ekkert vímuefni í CBD eða iðnaðarhampi.