150. löggjafarþing — 20. fundur,  17. okt. 2019.

ræktun iðnaðarhamps.

[10:38]
Horfa

ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Ég þakka fyrir fyrirspurnina. Ég tek það að sjálfsögðu til mín og er tilbúin að skoða hvað hægt er að gera og horfa á það heildstætt. Sömuleiðis þyrfti þá að skoða það með Bændasamtökunum og fleiri þeim hagsmunaaðilum í iðnaði sem hafa með málið að gera og líta til annarra ríkja og læra af reynslu þeirra áður en það væri tekið lengra.

Hampur sem slíkur inniheldur ekkert THC. Í Bandaríkjunum til að mynda er miðað við það að ef THC er undir 0,3 er plantan lögleg og í Evrópu er miðað við 0,2. Ég ætla svo sem ekki að fullyrða hvort það hafi einhver áhrif á regluverkið eða þá þröskulda eða hindranir sem eru í dag, þ.e. tengingin við það sem gefur vímu. Fordómar eða skoðanir sem fólk kann að hafa á vímuefninu eiga ekki að vera hindranir í annarri notkun sem hefur ekkert með það að gera. Það skiptir máli og ég tek það til mín að skoða þetta heildrænt og kanna hvort eitthvað er hægt að gera betur en nú er gert.