150. löggjafarþing — 20. fundur,  17. okt. 2019.

aðgerðir gegn peningaþvætti.

[10:39]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Herra forseti. Í síðustu viku afgreiddi þingið hér á handahlaupum og á óásættanlegum hraða tvö mál sem stjórnvöld vildu keyra í gegn. Þeim hafði þá nýlega borist til eyrna að yrðu þau ekki afgreidd væri hætta á að Ísland lenti á svokölluðum gráum lista alþjóðaframkvæmdahópsins FATF vegna þess að við fullnægðum ekki nauðsynlegum skilyrðum varðandi aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Gott og vel. Þingið studdi við þessar aðgerðir þrátt fyrir athugasemdir um aðdragandann og framkvæmdina og slugs stjórnvalda.

Nú berast hins vegar fréttir af því að ekki sé nóg að gert, enn sé vilji fyrir því að Ísland fari á þennan gráa lista með skelfilegum afleiðingum fyrir íslensk fyrirtæki, orðspor Íslands og almennt fyrir íslensk heimili. Það eru ekki vinir okkar í Evrópusambandinu sem vilja stilla okkur svona upp heldur sérstakir vinir Sjálfstæðisflokksins úr röðum Bandaríkjamanna og Breta sem vilja þannig gera Ísland að fordæmi.

Mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra hvort hún hafi vitneskju um þá atburðarás, hvort hún hafi haft vitneskju um þetta áður en fréttir bárust af þessu í morgun, og ef svo er hvort hún hafi upplýst samstarfsflokkana, ég veit að þingið var ekki upplýst. Ég spyr hvort hæstv. ráðherra komi af fjöllum og sé jafnvel þeirrar skoðunar að rangt sé farið með. Við höfum ekki mikinn tíma til að bregðast við þessu máli. Ef við förum á þennan gráa lista, ef Bretland og Bandaríkin eiga forgöngu um að Ísland sé sett á þennan gráa lista, þrátt fyrir að Evrópusambandið styðji okkur, þá erum við komin í flokk með löndum á borð við Íran, Pakistan, Afganistan, Jemen, Írak og Úganda af því að nokkrir vinir okkar vilja gera úr okkur fordæmi.

Ég hef áhuga á að vita hvort ráðherra hafði vitneskju um þetta eða hver vitneskja hennar um stöðu mála er.