aðgerðir gegn peningaþvætti.
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):
Herra forseti. Það er í fyrsta lagi þannig að ákvörðun um það hvort við verðum sett á þennan svokallaða gráa lista eða ekki hefur ekki verið tekin. Sú ákvörðun liggur ekki fyrir þannig að að sjálfsögðu get ég ekki staðið hér og sagt til um það hvort við lendum á listanum eða ekki. Sú ákvörðun hefur einfaldlega ekki verið tekin. Ef ég á að meta það hversu bjartsýn ég er eða svartsýn á það hvort við lendum á honum er það bara bundið við alla þá vinnu sem hefur farið fram, upplýsingar sem maður hefur um þá fundi sem hafa átt sér stað og ég get ekkert sagt til um það. Það er talað um vini Sjálfstæðisflokksins, Bandaríkjamenn og Breta — hvers konar orðfæri er þetta eiginlega? Eru Bretar og Bandaríkjamenn sem sagt ekki vinir Viðreisnar? Er Viðreisn ekki vinur Breta og Bandaríkjamanna? Er það allt í einu eitthvert skammaryrði fyrir Sjálfstæðisflokkinn að Bretar og Bandaríkjamenn séu vinaþjóðir okkar í alls konar samhengi, viðskiptalegu, stjórnmálalegu o.s.frv.? Ég get ekki alveg tekið undir það.
Þetta er auðvitað óundirbúin fyrirspurn til mín en mig langar að vita hvort hv. þingmaður viti að öll ríki Evrópusambandsins séu með okkur í liði um að við séum ekki sett á þennan lista. Ekki hef ég upplýsingar um að hægt sé að halda því fram að öll ríki Evrópusambandsins séu á móti því að við lendum á þeim lista. Auðvitað getur maður haft skoðun á því, ef við lendum á listanum. Hverjir trúa því að við eigum margt sameiginlegt með þeim löndum sem eru á listanum? Hvað er hægt að lesa í það að þessi lönd taki þá ákvörðun að setja Ísland á lista með þeim ríkjum sem þar eru? Fyrir utan almenna innviði sem við höfum í þessu landi höfum við farið í aðgerðir frá því að þessi áfellisdómur kom með 51 ágalla og við lítum svo á að við höfum bætt úr þeim öllum (Forseti hringir.) og ég ætla að hafa þá skoðun að við eigum ekkert heima á þessum gráa lista. Auðvitað er það ekki ákvörðun sem við tökum (Forseti hringir.) og við munum þá sitja uppi með hana, reynum að greina hvaða áhrif það kann að hafa og gerum það sem við getum til að koma okkur af þeim lista eins fljótt og auðið er.