150. löggjafarþing — 20. fundur,  17. okt. 2019.

aðgerðir gegn peningaþvætti.

[10:44]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Herra forseti. Þessi ræða hæstv. ráðherra vekur reyndar fleiri spurningar en hún svarar vegna þess að það er rétt um vika síðan fullyrt var í þingsal að þau mál sem fóru á hraðferð í gegnum þingið dygðu til að losa um þá hættu að við værum mögulega á leiðinni á þennan gráa lista. Ég ætla að endurtaka spurningu mína: Hefur hæstv. ráðherra einhverjar upplýsingar um hvaða önnur mál eru ókláruð af hálfu Íslands sem vekja þennan áhuga Bretlands og Bandaríkjanna á að búa til slíkt fordæmi fyrir okkur að við förum á gráan lista af því að við höfum ekki staðið okkur í aðgerðum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka? Er til skýrsla um þetta mál sem ekki hefur komið fyrir sjónir Alþingis? Er skýrsla undir einhverjum stól sem gæti gagnast við að fá nánari upplýsingar? Ég verð að segja að miðað við fréttir morgunsins og svar ráðherra hér er full ástæða að mínu mati fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis til að kalla eftir öllum gögnum í þessu máli. Við þurfum einfaldlega frekari upplýsingar.