löggæsla og innflutningur sterkra vímuefna.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa spurningu. Ef fjárlagafrumvarpið er lesið gætilega er hagræðingin rétt um 167 millj. kr. af heildarveltu ef frá er talinn sá einskiptiskostnaður sem kom inn í fyrra og það er með engu móti hægt að reikna þá hagræðingu upp í hátt í 30 ársverk lögreglunnar. Þetta er hagræðing upp á 0,95% en útgjöld til löggæslumála hafa hækkað gríðarlega síðustu ár og eru á sama verðlagi orðin hærri í ár en árið 2007 og eru yfir 17 milljarðar á ári. Löggæslan hefur verið efld á öllum sviðum, m.a. til að bregðast við skipulagðri glæpastarfsemi þar sem fóru sérstakar 410 millj. kr. í að efla aðgerðaáætlun um meðferð kynferðisbrota. Þar var settur sérstakur peningur frá ríkisstjórninni. Það er ekki með nokkru móti hægt að segja að það sé gríðarlegur niðurskurður hjá lögreglunni í landinu. Við erum að tala um 0,95%, það er hægt að hagræða á öllum sviðum samfélagsins og við erum samt sem áður alltaf að gera betur þegar kemur að lögreglumálum og styrkja alla innviði lögreglunnar sem vantaði upp á með þeim auknu fjármunum sem hafa farið í málaflokkinn á síðustu árum.