150. löggjafarþing — 20. fundur,  17. okt. 2019.

löggæsla og innflutningur sterkra vímuefna.

[10:52]
Horfa

dómsmálaráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Ég býst við að hv. þingmaður sé að vísa í fíkniefnavandann, segir hann aldrei hafa verið alvarlegri, ekki nokkru sinni fyrr. Ég er ekki viss um að það sé rétt þó að staðan sé ekki nógu góð. Ég er heldur ekki viss um að auknir fjármunir lögreglunnar séu það eina sem þarf til. Þótt við höfum aukið gríðarlega fjármuni til lögreglunnar til að bregðast við öllum þeim vanda sem blasir við íslensku samfélagi og löggæslan getur leyst úr (IngS: Ekki nóg að gert.) er ekki nægjanlegt að horfa til lögreglunnar af því að mikið af þeim vanda og stærsti vandinn sem hv. þingmaður horfir til er heilbrigðismál, (IngS: 35 …) fíkniefni og það. — Ég er með orðið, hv. þingmaður. Forseti.

(Forseti (SJS): Það er rétt.)

Við getum gert betur í þeim málaflokki eins og öllum öðrum en ég tel þó að verið sé að taka gríðarlega stór skref, hvert sem litið er í málaflokknum, og þar er löggæslan ekki ein á báti af því að hún mun ekki ein (Forseti hringir.) leysa þann vanda sem steðjar að okkur vegna fíkniefna.