150. löggjafarþing — 20. fundur,  17. okt. 2019.

Landsréttur.

[11:01]
Horfa

dómsmálaráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Þvílík þvæla að tala um að við stöndum með ásetningi í vegi fyrir góðri framkvæmd dómstólanna. Ef hv. þingmaður hefði skoðað málið vel myndi hún vita að það eru 13 dómarar starfandi við Landsrétt, 13 dómarar þar sem áður voru 15 og ávallt talið að einn yrði í námsleyfi þannig að venjulega yrðu þeir 14. Erfitt er að halda því fram að dómurinn sé með einhverjum hætti óstarfhæfur eða sinni ekki öllum mikilvægum verkefnum sínum því að það gerir hann. Ég hef átt fund með Landsrétti og dómstólasýslunni til að skoða stöðuna, hef fengið tölur og er að bíða eftir enn nákvæmari tölum um hvernig málin standa og hvernig þau þróast í dómstólnum og hvernig þeim gengur að halda á þeim.

Það var líka svo að þegar þessi löggjöf var sett voru 15 dómarar engin tala sem var rannsökuð sérstaklega í þeim tilgangi að vera hin fullkomna tala. Ég er að skoða þetta í samræmi við tölur um það hvernig Hæstarétti gengur og hvernig honum gekk áður en Landsréttur kom til, hvernig staðan hefur batnað og breyst og mun ég leggja mat á það allt áður en ég tek aðrar ákvarðanir. En fyrst og fremst er mikilvægt að Landsréttur er vel starfhæfur, er með gott plan fram að áramótum og við hann starfa 13 dómarar.