150. löggjafarþing — 20. fundur,  17. okt. 2019.

Landsréttur.

[11:04]
Horfa

dómsmálaráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég ætla að biðja hv. þingmann að leggja mér ekki orð í munn og segja að ég tali um þvælu þegar við tölum um málefni Landsréttar. Ég sagði að það væri þvæla að hv. þingmaður héldi því fram að það væri ásetningur Sjálfstæðisflokksins að koma í veg fyrir að Landsréttur starfaði eðlilega. Það er þvæla.

Ég er búin að fá upplýsingar og tala við Benedikt Bogason, formann dómstólasýslunnar, og auðvitað er mikilvægast að dómstóllinn starfi vel og eðlilega, að þar nái mál fram að ganga og að þar gangi vel. Þar eru 13 dómarar við störf og ég er að bíða eftir tölum, eins og ég sagði áðan. Það að tala um tómlæti í þeim efnum er auðvitað ekki rétt af því að verið er að skoða málin og leggja mat á stöðuna. Það þarf líka að fara sér hægt áður en maður gerir stórkostlegar breytingar þegar málin ganga vel af því að það eru líka til aðrir kostir eins og að halda áfram að setja dómara fyrir þá sem eru í leyfi.