ráðstafanir vegna útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu og Evrópska efnahagssvæðinu.
Forseti. Við fengum fréttir af því í morgun að Bretar og Evrópusambandið virðast hafa náð samkomulagi eða samningi um útgönguna. Það breytir því ekki að við þurfum að huga að hagsmunum okkar. Við tekur aðlögunartímabil, sem svo er kallað, 36 mánuðir. Við í Miðflokknum höfum fyrirvara á þessu máli. Sá fyrirvari lýtur fyrst og fremst að því að í samkomulaginu eða í þessu öllu saman er gert ráð fyrir að Bretar geti áfram keypt fasteignir og jarðir á Íslandi á aðlögunartímabilinu. Það hefði verið æskilegt að skilja það út undan en ég geri mér grein fyrir að það hefði kannski verið snúið eins og málin standa. Fyrirvari okkar lýtur fyrst og fremst að því að fasteignir hafi ekki verið undanskildar. Við skiljum hins vegar vel að það er ekki hægt að taka af mönnum það sem keypt var samkvæmt gildandi lögum. Við munum þess vegna greiða þessu máli atkvæði okkar alla leið en gerum þennan fyrirvara.