ráðstafanir vegna útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu og Evrópska efnahagssvæðinu.
Forseti. Ég er búinn að styðja öll þau borgararéttindi sem verið er að tryggja í þessu máli og er vel gert að þau séu inni. Aftur á móti eru hér liðir sem varða lög um verðbréfaviðskipti og lög um fjármálafyrirtæki. Ég veit ekki hvað þeir geta þýtt. Við erum að fara að framlengja samning sem er til staðar sem við gerðum við ríki á grundvelli EES-samningsins, ríki sem var í ESB og fer núna út. Ég veit ekki hvað þetta þýðir fyrir íslenska hagsmuni þegar kemur að verðbréfaviðskiptum og fjármálafyrirtækjum og ég ætla ekki að taka ábyrgð á því.
Ég sit því hjá.