aðgerðir í þágu smærri fyrirtækja.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni. Hann nefndi dönskuna og þá rifjaðist það upp fyrir mér þegar ég var í iðnnámi í Iðnskólanum í Reykjavík. Þar vorum við að læra dönsku. Ég var í tréiðnaðarnámi. Einhverjum datt í hug að taka inn dönskubók til að kenna okkur og hún var fyrir háskólamenntaða Dani um sögu iðnaðar í Danmörku. Það var danskur kennari sem kenndi okkur þetta og það sem ég man eftir er að annaðhvort orð skildist ekki. Þetta voru tækniorð. Það endaði með því að við þurftum að taka próf í þessu og meðaleinkunnin var 3,5. Það þurfti 3 til að ná. Það sagði okkur hvernig kerfið getur leikið okkur grátt. En eins og ég segi, ég er bara sammála því að við eigum að einblína á hæfileika allra þannig að þeir geti líka en svo annað í þessu: Við þurfum að vera með styrkjakerfi. Við þurfum að styrkja þegar við sjáum mjög hæfileikaríka einstaklinga þannig að þeir geti komið sínum hugmyndum af stað. Við erum t.d. komin í hönk með LÍN. Þar safnast peningar inn í hrönnum vegna þess að það vill enginn taka námslán. En nú þurfum við að fara að hugsa okkur um og styrkja, finna góðar hugmyndir og styrkja þær svo að allir geti komið sínu á framfæri.