150. löggjafarþing — 21. fundur,  17. okt. 2019.

sveitarstjórnarlög.

49. mál
[14:20]
Horfa

Inga Sæland (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Það sem ég hef kannski helst verið að horfa á þegar ég lít á málið er hið ótvíræða sjálfstæði sem sveitarstjórnum er tryggt í störfum sínum í stjórnarskrá. Hversu langt getum við hér gengið í því í almennri löggjöf að breyta því? Auðvitað hefur ráðherra eftirlitsheimildir með sveitarstjórnum ef svo ber undir en það er afar fátítt að ráðherrar blandi sér inn í sveitarstjórnarmálin. Það er nú það eina sem ég hef verið að velta fyrir mér hvað þetta varðar, hvort við höfum í raun heimild til þess að grípa inn í stjórnarskrárvarinn rétt sveitarstjórna hvað sjálfstæði þeirra varðar. Það er eina vafaatriðið. Þess vegna langar mig að spyrja hv. þingmann hvort hann hafi skoðað þann flöt sérstaklega eða hvort ég sé bara að misskilja þetta eitthvað.