sveitarstjórnarlög.
Virðulegi forseti. Nei, hv. þingmaður, þetta er bara mjög góð spurning. Það þarf að segja það skýrum orðum. Ég tel að núverandi fyrirkomulag hamli lýðræðismöguleikum sveitarfélaga þar sem það er 10% lágmark og 20% lágmark í íbúakosningum. Það sem þetta gerir er að leyfa sveitarstjórnum sjálfum í sínu sjálfstæði að hafa lægri þröskuld ef þau kjósa og/eða íbúar þeirra kjósa svo. Þetta gefur þeim meira sjálfstæði þannig að þetta var einmitt góð spurning hvað það varðar til þess að geta sagt það eins skýrum orðum og hægt er: Þetta eykur sjálfstæði sveitarstjórna alveg tvímælalaust. Þannig að ég bara þakka kærlega.