sveitarstjórnarlög.
Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Þetta er allt saman mjög áhugavert og við erum að horfa á dæmi um þetta víða á Vesturlöndum, að stjórnmálin og fjölmiðlarnir skynja ekki alveg nógu vel hvað fólk raunverulega vill. Frægasta dæmið er náttúrlega hitamálið í dag, Brexit. Þar virtust menn vera óviðbúnir því sem almenningur vildi raunverulega gera. En maður veit það ekki svo sem. Það er einmitt eins og hv. þingmaður kom inn á áðan, þetta getur líka klippt á erfið mál vegna þess að fólk virðir þetta. Þegar kominn er meiri hluti er það ákveðinn endapunktur. Þá er hægt að klippa á mál sem kannski gerist ekki öðruvísi.