markviss fræðsla um kynjafræði, kynfrelsi, sjálfsákvörðunarrétt og þýðingu samþykkis í kynferðislegum samskiptum.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir þetta innlegg. Vissulega eru, eins og hann réttilega vitnaði til, ákvæði um að það eigi að sinna fræðslu á þessu sviði og það er mjög vel. Það kann vel að vera að menn fái þá hugmynd við lestur þingsályktunartillögunnar að það sé ekkert gert. Svo er alls ekki. Það var ekki meiningin. Það er ýmislegt mjög gott gert en ég held að það þurfi að gera enn betur og ég held að það þurfi að hjálpa skólum sérstaklega við að hafa gott kennsluefni og fræða kennara sérstaklega um þessi atriði. Þess vegna er tillagan í sjálfu sér þrískipt, þ.e. að það verði varið fé, allt að 50 millj. kr. á ári næstu þrjú árin, í gerð kennslu- og námsefnis, kennslu og námskeið, fundi og ráðstefnur, gerð kynningarefnis fyrir nemendur og kennara. Þetta er hugsað til þess að styðja við það. Síðan er sérstaklega talað um réttarvörslukerfið. Síðan er talað um miðlun og herferðir frjálsra félagasamtaka, fjölmiðla og stofnanna, sem beint er að skilgreindum markhópum. Þar er fyrst og fremst verið að tala við almenning. Við vitum að við erum auðvitað sum ekki búin með skóla, önnur í skóla o.s.frv. þannig að það þarf líka að tala til almennings. Það þarf að tala inn í kerfið. Þetta er fyrst og fremst hugsað til þess að stórefla þennan þátt í starfi menntakerfisins og réttarvörslukerfisins þannig að menn hafi tól og tæki til að vinna með. Ég hef a.m.k. skynjað það þannig að þrátt fyrir fallegar yfirlýsingar sé — ég ætla alls ekki að segja pottur brotinn. En ég ætla að segja: Það má örugglega betur gera og ég held að aðstoð af þessu tagi ætti að (Forseti hringir.) vera vel þegin á þeim stöðum sem tillagan tekur til.