markviss fræðsla um kynjafræði, kynfrelsi, sjálfsákvörðunarrétt og þýðingu samþykkis í kynferðislegum samskiptum.
Enn þakka ég hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég held að það megi að sjálfsögðu alltaf gera betur. Vissulega er verið að gera ýmislegt vel. Hluti þessarar tillögu beinist að menntakerfinu sérstaklega. Það beinist að öllu skólakerfinu, ekki bara grunnskólum heldur í sjálfu sér leikskólum, framhaldsskólum og þess vegna háskólastiginu. Ég held að það sé mjög mikilvægt að á hverjum tíma sé til kennsluefni sem uppfylli þarfir nútímans. Bara endurnýjunarþörfin ein og sér á slíku efni kallar á fjármagn.
Um það fjallar tillagan ekki í sjálfu sér að við þurfum að fara að umbylta námskránni til að koma þessu fyrir. Ég held frekar að það sé hægt að efla það sem fyrir er. Það kann að vera að breyta þurfi námskrá. Ég skal ekkert fullyrða um það. En ég held að það sé mjög mikilvægt að geta samþætt þetta inn í kerfið og til sé efni og að það sé markviss fræðsla líka fyrir, og út á það gengur tillagan líka, kennarana sjálfa, gera þá enn betur í stakk búna til að fjalla um þessi oft á tíðum mjög erfiðu, viðkvæmu málefni. Þar er ég alveg sannfærður um að má gera betur.
Síðan er auðvitað það sem svo sem var ekki komið inn á í þessum andsvörum og kannski ástæðulaust að taka það sérstaklega upp en stór partur er réttarvörslukerfið sjálft.