markviss fræðsla um kynjafræði, kynfrelsi, sjálfsákvörðunarrétt og þýðingu samþykkis í kynferðislegum samskiptum.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Guðmundi Inga Kristinssyni kærlega fyrir hans ræðu og hugleiðingar. Það er vissulega mjög góð ábending að sjálfsagt veitti ekki af sérnámskeiðum fyrir stjórnmálamenn og stjórnsýsluna almennt en ekki var ráðist í það, enda myndi maður nú kannski ætla að þeir sem sýsla með lög og reglur, og setja öðrum reglur um það hvernig þeir eigi að haga sér í samfélaginu, ættu að kunna á þeim skil. En auðvitað er þetta allt saman til þess fallið að uppfræða okkur öll.
Hv. þingmaður kom líka með mikilvæga ábendingu sem varðar stöðu einstakra hópa sem eiga undir högg að sækja og eru sérstaklega viðkvæmir þegar kemur að málefnum af því tagi sem hér eru til umfjöllunar, þeim málefnum sem er verið að reyna að uppfræða um og koma í veg fyrir að menn séu beittir misrétti og ofbeldi. Það var ekki farið út í það að nefna einstaka hópa. Þetta er allt saman almenns eðlis en auðvitað hugsað í gegnum menntakerfið og þar er fatlað fólk líka. Fatlað fólk fer í gegnum réttarvörslukerfið og síðan erum við með hin frjálsu félagasamtök sem fá þarna tækifæri til að beita sér þannig að ég held í sjálfu sér að það ætti að vera hægt að sinna þessum hópi líka. Í það minnsta er alveg klárt að ekki er verið að útiloka þennan hóp eða koma í veg fyrir að hann fái sérstaka fræðslu eða að aðilar verði fræddir um sérstöðu hans.