150. löggjafarþing — 22. fundur,  21. okt. 2019.

menntun lögreglumanna.

233. mál
[17:23]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg):

Herra forseti. Ég þakka málshefjanda. Ég sat einmitt með henni í allsherjarnefnd á þeim tíma þegar þetta var til umræðu og þessar breytingar voru ákveðnar sem ég er afskaplega ánægð með. Það er ánægjulegt að heyra um betri dreifingu fólks af öllu landinu og að kynjahlutfall hafi breyst.

Við í allsherjar- og menntamálanefnd fórum á dögunum norður í heimsókn, m.a. í Háskólann á Akureyri og fengum kynningu á náminu og stöðu þess. Það sem ég myndi vilja spyrja hæstv. ráðherra um er annars vegar hvort það þurfi að fara að beita takmörkunum vegna þess hvernig komið er fyrir náminu vegna starfsnámsins. Mig langar líka að spyrja hvort ráðherrann sé sammála því að nemendur sem eru með sykursýki fái ekki að gerast lögreglumenn, fái ekki að taka þátt í starfsnáminu. Ég er með erindi frá fólki sem hefur verið meinuð þátttaka, fólki sem hefur meira að segja verið að vinna en svo þegar það átti að komast formlega í starfsnámið gekk það ekki eftir þrátt fyrir að læknir mæti ástand í lagi bæði líkamlegt og andlegt. Mér skilst að flugmenn megi fljúga þótt þeir séu sykursjúkir.

Svo langar mig líka að vita hvort ráðherra veit hvort sá fjöldi sem hefur útskrifast er allur kominn með starf.