störf þingsins.
Hæstv. forseti. Það var gleðidagur í gær þegar tveir ráðherrar úr ríkisstjórninni tilkynntu um fyrstu aðgerðir til að einfalda regluverkið í atvinnulífinu. Þetta er gríðarlega mikilvægt skref og mörg önnur munu fylgja í kjölfarið, en um er að ræða þriggja ára aðgerðaáætlun. Við þessar aðgerðir er jafnframt lögð áhersla á skilvirka og réttláta stjórnsýslu. Þegar við ætlum okkur að byggja upp öflugt atvinnulíf sem ætlað er að skapa mikil verðmæti fyrir okkur öll til að bæta lífsgæði okkar er mikilvægt að hægt sé að koma undir sig fótunum á einfaldan hátt, að við sem hér störfum flækjum ekki umhverfið það mikið að það sé bæði óskilvirkt og erfitt að stofna fyrirtæki og gera eitthvað nýtt með sínu eigin framtaki. Þess vegna er þetta svo mikilvægt skref og svo stór dagur í gær að við öll hljótum að fagna því með öllum okkar kröftum saman í þinginu.
Jafnframt er rétt að vekja athygli á máli sem liggur fyrir í samráðsgátt þar sem boðaðar eru breytingar sem eru þá næstu skref í þessari einföldun regluverksins. Ég hlakka svo sannarlega til að vinna að því með þeim ráðherrum sem í ríkisstjórninni starfa og öllum þingmönnum. Við eigum öll að horfa gagnrýnum augum á þær reglur sem eru í gildi, fara yfir þær og benda á ef þeirra er ekki lengur þörf eða ef hægt er að einfalda þær þannig að okkar samfélag gangi betur. Einfaldara regluverk er svo sannarlega þjóðþrifaverk og ríkisstjórnin sem hér starfar er að lyfta grettistaki í þeim efnum.