150. löggjafarþing — 23. fundur,  22. okt. 2019.

fríverslunarsamningar í Norður-Atlantshafi.

[14:06]
Horfa

Óli Björn Kárason (S):

Herra forseti. Efnahagur og lífskjör okkar Íslendinga eru undir því komin og byggja á því að tryggja opið aðgengi að erlendum mörkuðum um leið og við veitum erlendum aðilum eðlilegan og sanngjarnan aðgang að okkar markaði hér. Ég hef fullyrt hér, og hygg að hæstv. utanríkisráðherra hafi tekið undir það, að íslenskt samfélag sé litríkara, fjölbreyttara og sterkara efnahagslega vegna opinna samskipta við aðrar þjóðir. Fáar þjóðir eiga meira undir utanríkisviðskiptum en við Íslendingar, undir því að utanríkisviðskipti séu frjáls, og við höfum góða reynslu af gerð fríverslunarsamninga. Þar skiptir líka verulega miklu máli vera okkar í EFTA og aðild okkar að EES-samningnum sem er kannski mikilvægasti samningur á sviði viðskipta og efnahagsmála sem við eigum aðild að.

Hátt í tíu ár eða svo hef ég talað fyrir því að íslensk stjórnvöld beiti sér fyrir því að myndað verði eins konar fríverslunarsvæði í Norður-Atlantshafi, fríverslunarsvæði með þátttöku okkar á Íslandi, Noregs, Grænlands, Færeyja, Kanada og Bandaríkjanna og hugsanlega líka Bretlands ef mál þróast á þann veg sem flest bendir til. Með slíkum samningi yrði til markaður um 430 milljóna manna. Árið 2017 fluttu Íslendingar út vörur til þeirra landa sem ég nefndi fyrir liðlega 125 milljarða og þjónustu fyrir 335 milljarða. Þjónustujöfnuður við þessi lönd var okkur hagstæður um 174 milljarða, þar af var um 126 milljarða afgangur af viðskiptum við Bandaríkin.

Ég vil ganga enn lengra en þetta vegna þess að ég vil þróa þessi samskipti yfir á önnur svið, á sviði lista og menningar, vísinda, mennta og heilbrigðismála. Fríverslunarsamningur er hugsanlega fyrsta skrefið. Ég held að það sé rétt að við Íslendingar mörkum skýra stefnu þegar kemur að fríverslun, stefnu sem byggir á því að virða fullveldi og sjálfsákvörðunarrétt hverrar þjóðar.

Að þessu sögðu vil ég beina nokkrum spurningum til hæstv. utanríkisráðherra: Hver er staða Íslands varðandi fríverslun almennt og opin milliríkjaviðskipti miðað við aðrar þjóðir? Hversu opið er íslenskt hagkerfi þegar kemur að samanburði við aðrar þjóðir? Hver er stefna okkar almennt í utanríkisviðskiptum og við gerð fríverslunarsamninga? Er unnið að fríverslunarsamningi við Bandaríkin líkt og fréttir gáfu til kynna fyrir nokkru? Og hvað með Bretland, sérstaklega ef mál þróast eins og virðist stefna í, að Bretland fari út úr Evrópusambandinu? Hvaða aðrir fríverslunarsamningar kunna að vera í farvatninu, annaðhvort beint eða í gegnum þátttöku okkar innan EFTA?

Að lokum: Telur hæstv. utanríkisráðherra að það séu raunhæfir pólitískir möguleikar fyrir hendi að sá draumur minn rætist að mynda fríverslunarsvæði með samvinnu í Norður-Atlantshafi, að Íslendingar, Færeyingar, Grænlendingar, Norðmenn, Bretar, Bandaríkjamenn og Kanadamenn taki höndum saman? Eru pólitískt raunhæfir möguleikar á því að ég sjái slíkan draum rætast á komandi árum?