150. löggjafarþing — 23. fundur,  22. okt. 2019.

fríverslunarsamningar í Norður-Atlantshafi.

[14:23]
Horfa

Álfheiður Eymarsdóttir (P):

Herra forseti. Ekki ætla ég að fara að tala gegn verslun og viðskiptum milli ríkja enda held ég að það sé lífsspursmál fyrir samfélag eins og Ísland að við stöndum í samskiptum við umheiminn á sviði verslunar, viðskipta, menningar og allra þeirra sviða sem málshefjandi nefndi. Ég velti hins vegar fyrir mér, og vildi grípa boltann frá hv. þm. Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur, hvort við séum nógu dugleg að halda á lofti umhverfis- og loftslagsvernd í samfélagi okkar meðal þjóða og þar með talið viðskiptasamfélaginu. Það er ákveðið tækifæri núna til að skoða hvort ekki sé kominn tími og tækifæri til að setja ákvæði í alla okkar milliríkjaviðskiptasamninga um skilyrði vegna alþjóðaskuldbindinga í loftslagsaðgerðum. Ákvæðinu myndi svipa til ákvæða sem við erum með í flestum okkar viðskiptasamningum um að virða skuli mannréttindi. Við höfum kannski ekki fylgt þeim ákvæðum nógu vel eftir en ættum að taka okkur á í þeim efnum. Það er tilgangslaust að vera með ákvæði sem eru bara orðin tóm.

Það er a.m.k. tilvalið núna að bæta við klásúlum um loftslagsmálin, fylgja þeim vel úr hlaði og koma okkur upp verklagi þar sem fylgst er með að skilyrðin séu uppfyllt, bæði vegna loftslagsmála en ekki síður mannréttinda. Viðskipti og fríverslun á nefnilega ekki að stunda í tómarúmi heldur með samfélagslegri ábyrgð.