150. löggjafarþing — 23. fundur,  22. okt. 2019.

fríverslunarsamningar í Norður-Atlantshafi.

[14:24]
Horfa

Willum Þór Þórsson (F):

Hæstv. forseti. Við ræðum fríverslunarsamninga í Norður-Atlantshafi og ég þakka málshefjanda, hv. þm. Óla Birni Kárasyni, umræðuna og hæstv. utanríkisráðherra Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir hans innlegg. Það er fróðlegt að heyra þær áherslur að unnið sé að auknu samstarfi og samvinnu við þær þjóðir sem hér um ræðir. Við höfum nýverið samþykkt lög um ráðstafanir vegna útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu, heimild til að staðfesta samning um fyrirkomulag mála vegna aðildar og samningsins um Evrópska efnahagssvæðið og á milli EFTA-ríkjanna við Bretland. Þá er spurning hvað tekur við í framhaldinu. Við eigum auðvitað mikið undir í viðskiptasamskiptum við Bretland. Fríverslunarsamningar almennt eru ekki bara mikilvægir heldur okkur nauðsynlegir sem útflutningsháðri þjóð og leið til að efla viðskipti og alþjóðasamstarf sem er okkur nauðsynlegt, hvort heldur er tvíhliða eða í bandalagi við aðrar þjóðir, eins og við þekkjum í gegnum EFTA-samstarfið. Aðallega höfum við gert slíka samninga utan Evrópusambandsins í gegnum EFTA-samstarfið og erum þannig aðilar að fjölmörgum fríverslunarsamningum og einhverjir eru í bígerð, eins og hæstv. utanríkisráðherra fór vel yfir. Þá erum við auðvitað með tvíhliða samstarf við til að mynda Kína, Færeyjar og Grænland.

Ég hygg að það hafi orðið torsóttara í seinni tíð að gera fríverslunarsamninga þar sem undir er markaðsaðgengi, bætt viðskiptakjör og almenn lífskjör og hygg að samningaumleitanir við Kanada séu dæmi um það. Að ræða fríverslun og fríverslunarsvæði í Norður-Atlantshafi í ljósi stöðunnar er ekki bara áhugavert heldur er kannski við hæfi að leiða hugann að þessu svæði með þeim hætti sem hv. málshefjandi varpar fram.