fríverslunarsamningar í Norður-Atlantshafi.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Óla Birni Kárasyni fyrir þessa umræðu og ráðherra fyrir að taka þátt í henni. Við erum að ræða fríverslunarsamninga og ég hjó eftir einni tölu sem sló mig mikið. Það var 26% tollfrelsi sem Evrópusambandið er með en við erum með 90%. Ef við værum í Evrópusambandinu fengjum við bara 26% hagnað út úr því. Ég held að þetta sé bara staðfesting á því að við eigum ekki að líta á Evrópusambandið, ekki einu sinni hornauga, heldur bara þakka okkur sæla fyrir að við erum ekkert á leiðinni þangað inn. Það er greinilega ekki kostur.
Fríverslunarsamningur við Bretland er heldur ekki eitthvað sem er á dagskrá vegna þess að sagan endalausa, Brexit, heldur áfram og virðist engan endi ætla að taka. Það virðist vera mjög erfitt að skilja við Evrópusambandið. Og við Ameríku? Jú, en á sama tíma eru Kínverjar með Belti og braut. En hvað með Rússland? Það er svolítið skrýtið að við tókum þátt í viðskiptabanni við Rússa í samstarfi við Evrópusambandið vegna þess að Rússar fóru inn í Úkraínu. En einhvern veginn hafa ríki eins og Færeyjar og fleiri getað haldið fullum viðskiptasamningum við Rússa án þess að það hafi breytt einu né neinu. Ég segi fyrir mitt leyti að við erum skrýtin að því leyti að við tökum kannski eitt stríðið út og segjum: Nú tökum við þátt í viðskiptabanni, en svo kemur annað stríð, eins og Tyrkland, og Bandaríkjamenn hlaupa þaðan í burtu og skilja Kúrdana eftir sem skotmark fyrir Tyrki og enginn virðist vilja koma á viðskiptaþvingunum vegna þess. Síðan eru auðvitað mannréttindi verkafólks og bara almenn mannréttindi. Í þessum samningum verðum við líka að passa upp á þau. Við vitum að það er pottur brotinn í mörgum ríkjum. En sennilega í engu af þeim ríkjum sem við erum að fjalla um núna.