fríverslunarsamningar í Norður-Atlantshafi.
Virðulegi forseti. Ég verð að segja eins og er að mér finnst þessi sérstaka umræða Sjálfstæðisflokksins benda til þess að Sjálfstæðismenn vilji leiða umræðuna frá kjarna málsins sem er dýpri, víðtækari og meiri samvinna á EES-svæðinu og innri markaðinum og þá frekari möguleikar okkar Íslendinga á þeim vettvangi. Við í Viðreisn spáðum því að að Sjálfstæðisflokkurinn myndi, m.a. af ótta við Miðflokkinn, fara mjög fljótt aftur í gamla farið eftir orkupakkaumræðuna eftir að við vorum búin að hjálpa þeim í gegnum þá klípu. Það er að raungerast í þinginu í dag.
Við skulum bara ræða eðlismuninn á tvíhliða samstarfi, viðskiptasamstarfi annars vegar og fjölþjóðasamstarfi hins vegar. Í staðreyndaskýrslu Björns Bjarnasonar um EES segir að ekkert tvíhliða samstarf komi í stað innri markaðar ESB. Í skýrslunni segir líka að alþjóðlegir dómstólar veiti smærri ríkjum, eins og okkur Íslendingum, meiri vernd. Ég bendi á Icesave-málið. ESB er líka með fullt af fríverslunarsamningum við önnur ríki, reyndar tugi ríkja. Löndin í Norður-Atlantshafinu sem hefur verið bent á eru ekkert mjög líkleg, a.m.k. ekki Noregur, Færeyjar og Grænland, til að fórna þeirri stöðu sem þau hafa nú þegar. Hafa menn spurt þau að því? Að mínu mati er það allt vegna ákveðinnar þröngsýni innan Sjálfstæðisflokksins af ótta við Miðflokkinn. Slíkur samningur myndi að mínu mati bæta litlu við það sem við höfum.
Í skýrslu Björns Bjarnasonar segir að sjálfstæði okkar og fullveldi þjóða sé að fullu virt á innri markaði ESB og þar af leiðandi í sambandinu öllu. Eigum við þá að hafa sameiginlegar reglur með innri markaðnum og reyna að efla okkur þar eða ætlum við að fylgja nýjum reglum Breta? Ég hef ekki heyrt betur en að utanríkisráðherra vilji ásamt mörgum þingmönnum Sjálfstæðisflokksins taka þær upp. Hvað þýðir það að taka upp reglur Breta varðandi samkeppni, heilbrigðisreglugerð, (Forseti hringir.) neytendavernd, áherslur Bandaríkjamanna og Breta í umhverfismálum? Er það það sem Sjálfstæðisflokkurinn vill í öllu þessu brambolti sínu?(Forseti hringir.) Og hefur Sjálfstæðisflokkurinn rætt þessi mál við samstarfsflokkana í ríkisstjórn?