ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 74/2019 um breytingu á II. og IV. viðauka við EES-samninginn.
Virðulegi forseti. Með þessari þingsályktunartillögu er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta fyrir Íslands hönd ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 74/2019 sem mælir fyrir um að tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2015/1513, um breytingu á tilskipun 98/70/EB um gæði bensíns og dísileldsneytis og um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/28/EB um að auka notkun orku frá endurnýjanlegum orkugjöfum og um breytingu og síðar niðurfellingu á tilskipunum 2001/77/EB og 2003/30/EB, verði tekin upp í EES-samninginn. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2015/1513 hefur að geyma ákvæði sem fela m.a. í sér aukin skýrsluskil eldsneytisbirgja, breytt lágmark minnkunar á losun gróðurhúsalofttegunda með notkun lífeldsneytis og ákvæði til að bregðast við óbeinum breytingum á landnýtingu vegna framleiðslu lífeldsneytis.
Tilskipunin gerir nokkrar breytingar á tilskipun 98/70/EB. Ákvæði var bætt við þess efnis að aðildarríkin geti heimilað birgjum lífeldsneytis til notkunar í flugi til að taka þátt í minnkunarskyldunni á gróðurhúsalofttegundum sem kveðið er á um í tilskipun 98/70/EB. Einnig er aðildarríkjum gefinn kostur á, í því skyni að uppfylla minnkunarskylduna, að leggja hámark við framleiðslu lífeldsneytis úr korni og öðrum sterkjuríkum plöntum, sykri, olíuplöntum og plöntum sem eru ræktaðar aðallega í því skyni að framleiða orku.
Þá er kveðið á um að tilteknar viðbótarupplýsingar skuli fylgja árlegum skýrslum birgja, þar á meðal bráðabirgðamat á losun frá lífeldsneyti vegna óbeinna breytinga á landnýtingu.
Tilskipun 2015/1513 gerir einnig nokkrar breytingar á tilskipun 2009/28/EB sem innleidd var með lögum nr. 40/2013, um endurnýjanlegt eldsneyti í samgöngum á landi, og reglugerð nr. 870/2013, um söfnun gagna um framleiðslu, innflutning, geymslu og sölu á eldsneyti og eftirlit með orkuhlutdeild endurnýjanlegs eldsneytis í heildarsölu til samgangna á landi. Breytingarnar kalla á nokkrar breytingar á lögum nr. 40/2013.
Ég legg til, virðulegi forseti, að að lokinni þessari umræðu verði tillögu vísað til hv. utanríkismálanefndar.