fullgilding heildarsamnings um efnahagslega samvinnu milli EFTA-ríkjanna og Indónesíu.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar um heimild til handa ríkisstjórninni að fullgilda fyrir Íslands hönd heildarsamning um efnahagslega samvinnu milli EFTA-ríkjanna og Indónesíu sem undirritaður var 16. desember 2018.
Samningurinn tryggir Íslandi víðtækan tollfrjálsan markaðsaðgang fyrir allar helstu útflutningsvörur Íslands. Indónesía er fjórða fjölmennasta land heims með um 260 milljónir íbúa og Indónesía er með 16. stærsta hagkerfi í heimi. Útflutningur árið 2018 var 175 milljónir, aðallega sjávarafurðir, og innflutningur sama ár var 1.274 milljónir, aðallega raftæki, skór og fatnaður. Þá hafa íslensk fyrirtæki selt tækniþekkingu á sviði jarðvarma í Indónesíu.
Efni samningsins skiptist í 12 kafla, 17 viðauka og viljayfirlýsingu um samvinnu ríkjanna. Í samningnum er m.a. kveðið á um vöruviðskipti, þjónustuviðskipti, fjárfestingar, verndun hugverkaréttinda, opinber innkaup, samkeppni, viðskipti og sjálfbæra þróun, auk hefðbundinna ákvæða um sameiginlega nefnd og lausn deilumála.
Nánari grein er gerð fyrir samningnum í þingsályktunartillögunni. EFTA-ríkin, Ísland, Liechtenstein, Noregur og Sviss, hafa nú gert 29 fríverslunarsamninga við 40 ríki og sjálfsstjórnarhéruð, að samningnum við Indónesíu meðtöldum.
Ég legg til, virðulegur forseti, að að lokinni þessari umræðu verði tillögunni vísað til síðari umr. og hv. utanríkismálanefndar.