150. löggjafarþing — 23. fundur,  22. okt. 2019.

þjóðarsjóður.

243. mál
[16:48]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg):

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir framsögu í málinu. Eins og ráðherra og margir hv. þingmenn hafa komið inn á erum við nú að ræða þetta mál í annað sinn. Hv. efnahags- og viðskiptanefnd hafði málið til umfjöllunar, eins og ítrekað hefur komið hér fram, sl. vetur en málið kláraðist ekki í vor. Ég er mikið fyrir endurvinnslu þannig að ræða mín byggir að miklu leyti á ræðu minni frá því í desember sl. þegar við ræddum þetta mál og komum aðeins inn á þá þætti sem ég ympraði á þá. Fyrst eru þeir þættir sem snúa að bráðabirgðaákvæði II. Það er örlítil breyting á því. Nú er ekki gert ráð fyrir að fjármunir sem áttu að renna til uppbyggingar hjúkrunarrýma renni til þeirra á árunum 2020–2022 og 2020–2024. Það er aðeins dreift úr fjárstreyminu. Raunar held ég að það geti að mörgu leyti verið skynsamlegt. En ég velti hins vegar fyrir mér hvort það mætti með einhverju móti víkka út bráðabirgðaákvæði II, sérstaklega það sem snýr að hjúkrunarrýmum og dagdvalarrýmum. Hv. þingmenn eru vafalaust kunnugir því að það hefur verið töluvert rætt um breytingu á þjónustumódelum í tengslum við þjónustu við eldra fólk, þar með talið aukningu á heimaþjónustu, bættan tækjabúnað til að gera fólki kleift að njóta slíkrar þjónustu o.s.frv. Ég velti því fyrir mér hvort bráðabirgðaákvæði II gæti þess vegna verið kannski örlítið víðara eða hvort ákvæðin um 10 milljarða til nýsköpunarmála ættu kannski við um þessa nýsköpun í öldrunarþjónustu. En mér finnst það vera kannski nokkuð langt seilst svo ég velti fyrir mér hvort ekki mætti víkka ákvæðið sérstaklega út hvað varðar hjúkrunarrýmin.

Ég ræddi á síðasta ári svolítið um hvort það væri flötur á því að víkka út 5. gr., þ.e. með tilliti til þess hvaða fjármunir kynnu á einhverjum tíma að geta runnið til sjóðsins. Í frumvarpinu eins og það er núna er fyrst og fremst gert ráð fyrir tekjum af orkuauðlindum á forræði ríkisins og ég get alveg tekið undir að það gæti verið ágætisbyrjun. En ég er alla vega ekki hættur að velta fyrir mér hvort þarna gætu tekjur af fleiri auðlindum komið til greina, til að mynda vegna réttar til að stunda fiskeldi á einhverjum tilteknum stöðum og annarra auðlinda eftir atvikum. Þar má nefna að það er í sjálfu sér auðlindanýting að fá leyfi til að sýna landið, skulum við segja, eða fara á tiltekna staði á landinu. Það má alveg velta því fyrir sér að það eigi að vera einhvers konar ígildi auðlindagjalds af því sem gæti runnið til þessa sjóðs.

Ég velti því líka fyrir mér, herra forseti, hvort það væri ekki skynsamlegt að hafa einhvers konar hámark á sjóðnum. Við vonumst væntanlega öll til að það komi mjög sjaldan til þess að þurfi að nota fjármuni sjóðsins vegna hamfara eða áfalla sem rætt er um í frumvarpinu. Ég ímynda mér einhvern veginn að sjóðurinn gæti „lent í því“ að vera orðinn 400–500 milljarðar eða jafnvel enn þá stærri, ef sneyðist um hamfarir, ef við getum orðað það svo. Þá gætum við verið með sjóðinn orðinn býsna stóran og þó að í sjálfu sér sé ekki slæmt að vera með gott akkeri í fjármálum ríkisins finnst mér a.m.k. að það þurfi, alla vega í þeim umræðum sem fram fara í kjölfar þessarar umræðu, að ræða sérstaklega hvort á einhverjum tilteknum tímapunkti eigi til að mynda að ákveða að ávöxtun á sjóðnum eða einhver tiltekinn lítill hluti hans gæti runnið til tiltekinna verkefna þegar hann er orðinn það stór að það væri fyrirsjáanlegt að hann gæti dugað til að grípa inn í — ég er ekki að segja hvaða hamfarir sem er en alla vega langstærstan hluta þeirra. Mér þykir þetta skipta máli.

Í meðförum nefndarinnar var rætt töluvert mikið um fjárfestingarstefnuna og hvort ætti að tiltaka skýrar hvernig hún ætti að vera. Í frumvarpinu eru ekki harðar breytingar á því sem kallast getur fjárfestingarstefna sjóðsins en í greinargerðinni er hins vegar rætt nokkuð um vísbendingar um hvað þarna gæti fallið undir. Ég velti því fyrir mér, eins og raunar fleiri þingmenn, hvort það ætti hreinlega að vera inni í reglum sjóðsins að hann mætti til að mynda ekki fjárfesta í verkefnum eða fyrirtækjum sem beinlínis ganga gegn t.d. loftslagsmarkmiðum íslenska ríkisins, að sjóðurinn fjárfesti ekki almennt í þá átt og það væri beinlínis sagt að þannig vildum við hafa það.

Ég velti líka fyrir mér, herra forseti, og það er eitt af því sem ég hefði spurt hæstv. ráðherra ef ég hefði komist í andsvör við hann sem ég því miður gerði ekki, hvort fyrirkomulagið í 6. gr. um ráðstöfun, þ.e. hvernig við getum gripið til sjóðsins, sé ekki nokkuð umhendis. Ég skil vel að það megi ekki vera auðvelt að grípa til fjármuna sjóðsins en mér sýnist líka að það verklag sem hér er mælt fyrir um geti verið, alla vega við hamfaraaðstæður, nokkuð tímafrekt og hvort það þurfi þá ekki a.m.k. að vera einhvers konar heimildarákvæði til að grípa inn í. Auðvitað hefur Alþingi og ríkissjóður, Alþingi alla vega, fjárheimildir eða heimildir til þess að grípa til breytinga á lögum ef þarf í skyndi vegna einhverra skelfilegra aðstæðna sem kynnu að koma upp en ég velti því fyrir mér hvort það ætti að vera einhvers konar vísan í þetta í 2. mgr. 6. gr. þannig að hægt væri hægt að grípa inn í með nokkrum hraða.

Ég ætla ekki að rekja í smáatriðum þær breytingar sem eru í frumvarpinu. Mest áberandi breytingarnar eru í 3. gr. sem ég held að sé óhætt að segja að séu mjög jákvæðar. Þær breytingar sem eru gerðar yfirleitt á frumvarpinu eru að mínu viti jákvæðar. En ég vona að þrátt fyrir þann tón sem hefur verið í ræðum a.m.k. sumra þingmanna hér í dag getum við í hv. efnahags- og viðskiptanefnd náð nokkurri samstöðu um þetta mál og komist lengra með það að þessu sinni. Ég tel ekki að þetta mál þurfi meira en tvær umferðir til að geta náð að verða að lögum. Ég held að með því að búa svo um hnútana að stofna þjóðarsjóð með því fyrirkomulagi sem hér er rætt séum við í rauninni að tryggja ákveðna akkerisfestu fyrir samfélagið til lengri tíma og þegar sjóðurinn er orðinn hæfilega stór mun hann hafa afar jákvæð áhrif á íslenska ríkið og okkur sem samfélag.