150. löggjafarþing — 24. fundur,  23. okt. 2019.

störf þingsins.

[15:15]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Herra forseti. Málefni ýmissa minnihlutahópa meðal þjóða heims, þjóðarbrota, einstakra héraða eða svæða víða um heim hafa lengi verið í brennidepli. Við Íslendingar höfum vilja skipta okkur af slíkum málum, sérstaklega í seinni tíð sem einhvers konar sérstakir boðberar sátta og samkomulags, og á stundum gengið hart fram í því hlutverki og kannski heldur meira eftir því sem við erum fjær atburðinum sjálfum.

Hér á ég við nýlega atburði í landi sem við mörg hver höfum ferðast til. Þetta land er aðili að sjálfu Evrópusambandinu og einnig er land þetta ásamt okkur aðili að NATO. Hæstiréttur Spánar kvað nýverið upp dóm yfir tug pólitískra forystumanna frá Katalóníu á Spáni sem setið höfðu í gæsluvarðhaldi í meira en tvö ár og dæmdi þá til langrar fangelsisvistar, samtals yfir 100 ár, en lengsti dómurinn var 13 ára fangelsi. Samkvæmt fréttum ber sami hæstiréttur ábyrgð á fangelsun þeirra og möguleikar á áfrýjun sýnast engir. Þessir menn eru stjórnmálamenn og höfðu ekki sýnt af sér ofbeldi eða hvatt til þess, heldur voru þeir að berjast fyrir sjálfstæði landsvæðis innan Spánar. Þetta gerist í landi sem er nálægt okkur í öllu tilliti. Þetta gæti heldur betur verið verðugt verkefni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu að skoða.

Herra forseti. Ég lýsi yfir þungum áhyggjum af því réttarfari sem dómar þessir eru til marks um.