störf þingsins.
Herra forseti. Skiptar skoðanir hafa alla tíð verið á sameiningum sveitarfélaga og sannarlega hægt að segja að þannig sé því farið núna, enda skiptir máli hvernig að þeim er staðið. Sjálf hef ég ekki verið hlynnt lögþvinguðum sameiningum eins og gert er ráð fyrir í frumvarpi sveitarstjórnarráðherra sem nú er til umfjöllunar í nefnd.
Það sem mig langaði þó til að ræða í dag er fyrirhuguð sameining sveitarfélaga á Austurlandi. Á laugardaginn á að greiða atkvæði um sameiningu Djúpavogs, Borgarfjarðar eystra, Seyðisfjarðar og Fljótsdalshéraðs. Þetta er landfræðilega mjög stór sameining sem mun telja um 5.000 íbúa ef af verður. Ég hef fylgst nokkuð með aðdragandanum og held að sú vinna sem hefur átt sér stað sé forsenda þess að hægt sé yfirleitt að fara með málið áfram. Fólkið sem hefur verið í fararbroddi vinnunnar hefur velt við ansi mörgum steinum og horft til þeirra sameininga sem nú þegar hafa átt sér stað víða um land og dregið af þeim ákveðinn lærdóm.
Hugmyndafræðin um þriggja manna heimastjórnir í hverju byggðarlagi er til þess fallin að færa ákveðin völd heim í byggðarlögin á tiltekna nærþjónustu sem ég held að skipti höfuðmáli.
Það var líka ánægjulegt að sjá unga fólkið á Austfjörðum sem tók málið í sínar hendur þar sem ungmennaráðið taldi að kanna þyrfti hug unga fólksins á svæðinu og það gerði unga fólkið með skuggakosningu í efstu bekkjum grunnskólanna og í Menntaskólanum á Egilsstöðum. Tilgangurinn er að sjálfsögðu sá að vekja áhuga ungs fólks á kosningum og afgerandi meiri hluti þess hóps sem greiddi atkvæði, tæp 80%, er fylgjandi sameiningunni. Eftir að hafa fylgst með er ég sannfærð, eins og unga fólkið, um að þetta sé heillaskref og það verður mjög áhugavert fyrir þau sveitarfélög sem hafa verið að velta fyrir sér sameiningum að fylgjast með hvernig til tekst. Ég hvet íbúa þessara byggðarlaga til að fjölmenna á kjörstað á laugardaginn og sýna hug sinn.