störf þingsins.
Herra forseti. Suðurland er langstærsta ferðamannasvæði landsins og eru enn þá fyrir hendi mikil sóknarfæri í ferðaþjónustu, landbúnaði, sjávarútvegi og hafnarþjónustu, svo eitthvað sé nefnt, og er ég þá ekki að gera lítið úr öðrum svæðum. Allir vita að innviðirnir hafa ekki haldið í við mikla aukningu ferðamanna þrátt fyrir að mjög líklega haldi áfangastaðirnir á svæðinu uppi stórum hluta af þeirri hagvaxtaraukningu sem orðið hefur vegna þeirra og varð einmitt til þegar mest þurfti á að halda. Það er enn þá 21 einbreið brú í þessu héraði og vegakerfið fær að öðru leyti víða of lítið viðhald og stendur hvergi nærri undir þessari umferð. Leiða má að því miklar líkur að mörg slys, og sum mjög stór, því miður, hafi ekki síst orðið vegna lélegs vegakerfis. Auðvitað er talsvert verið að gera og það er þakkarvert en betur má ef duga skal.
Nú er staðan einhvern veginn þannig að hvergi er hægt að hugsa um vegagerð né aðra innviðaframkvæmd án þess að heimta að notendur greiði sérstaklega fyrir hana og eru þeir þá mjög þröngt skilgreindir notendur og ná engan veginn yfir alla þá sem njóta. Hvernig væri vegakerfið í þessum héruðum ef hin fámennu samfélög á fyrri tíð hefðu átt að standa undir framkvæmdunum? Hver er ávinningurinn af því að þetta var þó gert fyrir samfélagið í heild? Auðvitað hefur þetta marggreitt sig sjálft og gott betur. Þannig er þetta enn þá í dag.
Ég tel að lífeyrissjóðir landsmanna séu mjög vel til þess fallnir að lána fé til vegagerðar. Þeir sem safna fé til elliáranna hafa í raun og veru ekki lagt til mat í hirslur eða eldsneyti eða utanlandsferðir sem eitthvað sem bíður þeirra að vera tekið úr hillunum heldur hafa þeir safnað peningum sem geta aldrei orðið meira virði en kraftur efnahagslífsins segir til um þegar til kastanna kemur. Ef innviðirnir eru vel uppbyggðir verður krafturinn meiri í framtíðinni. Það er tengingin sem ég vil koma á framfæri, (Forseti hringir.) það á að nota tækifærið og byggja upp innviði, nýta slaka í efnahagslífinu, vélar og vinnuafl og annað sem er á lausu. (Forseti hringir.) Besta leiðin til að efla efnahagslíf framtíðar er innviðauppbygging nútíðar.